Háskólinn á Akureyri

Stutt lýsing:Markmið þessa verkefnis er að þróa svokallaða „extension" þjónustu að

Extension

Stutt lýsing:
Markmið þessa verkefnis er að þróa svokallaða „extension" þjónustu að hætti háskóla í USA. Slík þjónusta byggir á ráðgjöf til fyrirtækja á tilteknum þekkingarsviðum sem viðkomandi skólar hafa. Oft einskorðast þessi þjónusta við lítil stutt verkefni jafnvel eingöngu símaþjónusta. Markmið slíkrar þjónustu er að tengja saman þekkingu og færni háskóla, fyrirtækja og þá sem fjármagna frekari rannsóknir og athuganir.
Þegar hefur verið haft í sambandi við nokkur fyrirtæki í Eyjafirði og nærsveitum varðandi fyrirspurnir um ýmiss atriði sem tengjast þeirra starfsemi, sérstaklega þeirri sem lýtur að þróun og nýjungum í framleiðslu þeirra og viðskiptavina þeirra. Vandamálin tengjast gæðamálum almennt, HACCP, örverufræði, öryggi („Hazards"), GMP, hreinlæti og þrif, merkingar, framleiðslutækni, geymsluþoli og slíkt.

Samstarfsaðilar: Raf ehf og Ektafiskur ehf

Mannafli: Hægt að bæta við amk 1 manni strax í 50% stöðu.

Tími: Verkefnið er í gangi. Um er að ræða nýráðningu í 12 mánuði amk frá og með 1 des. nk.

Kostnaður: Launakostnaður í 6 mannmánuðir @ 350 per mmán eða um 2,1 mkr. Annar kostnaður fellur á verkefnið.

Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf