Samstarfsaðilar: Rannsóknamiðstöð ferðamála, sveitarfélög, landshlutamarkaðsskrifstofur/atvinnuþróunarfélög og ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi
Mannafli: Fólk til að hringja út og halda úti könnunum
Tími: Hægt að hefjast handa strax
Kostnaður: 1.5 milljón á hvern landshluta
Stutt lýsing
Rannsóknamiðstöð ferðamála vill setja í framkvæmd kannanir á ferðavenjum Íslendinga innanlands að vetri og sumri með svæðisbundnum áherslum. Þessar kannanir hafa það markmið að greina ferðamynstur og neysluhegðun innlendra ferðamanna um landið til að átta sig betur á hvað þeir skilja eftir sig og hvar, bæði með tilliti til landshluta sem og ólíkra fyrirtækja.
Nú þegar hefur verið gerð frumathugun (e. pilot study) á Norðurlandi (allt frá Húnaþingi í vestri að Þingeyjasýslum í austri) fyrstu landssvæða á Íslandi. Niðurstöður Norðurlandskönnunarinnar hafa hlotið afar góðar viðtökur hjá ferðaþjónustuaðilum og sveitarfélögum á svæðinu og gefið mikilvægar upplýsingar um þá innlendu ferðamenn sem sækja svæðið heim að vetrarlagi. Niðurstöðurnar hafa jafnframt nýst ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi til frekari markaðssetningar á áfangastöðum í landshlutanum.
Ætlunin er að yfirfæra Norðurlandskönnunina yfir á hina landshlutana og nýta þannig þá grunnhugmynd sem þegar hefur verið þróuð. Þannig má sjá fyrir sér að gerð verði símakönnun á stóru úrtaki einstaklinga sem yrðu valdir af handahófi úr Þjóðskrá og þeir inntir eftir svörum í samræmi við valdar spurningar sem ætlað er að meta ferða- og neysluvenjur þeirra/ferðamannanna innanlands að vetrarlagi síðustu tvö ár. Hægt er að hefjast handa við undirbúning og frekari skilgreiningar fyrir kannanirnar strax svo að framkvæmd símakönnunarinnar geti hafist fljótlega upp úr áramótum. Í framhaldinu er hægt að framkvæma samskonar könnun að sumri til.
Hægt er að sjá fyrir sér að þessar kannanir skapi sérfræðistörf við útfærslu kannanna sem taka mið af sérstöðu hvers landshluta, störf við úthringingar i tengslum við gagnaöflun, störf við tölfræðiúrvinnslu og túlkun gagna auk kynninga niðurstaðna í samvinnu við ferðaþjónustuaðila á hverju landssvæði fyrir sig. Auk þess er hægt að sjá fyrir sér í framhaldinu aukin verkefni í tengslum við gerð markvissari stefnumótunar, áætlanagerðar og svæðisbundinnar markaðssetningar sem áhrifa af undirstöðurannsóknum sem þessum. Yfirumsjón með framkvæmd kannanna og úrvinnslu yrði í höndum Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.
Hugmyndasmiðir: Eyrún Jenný Bjarnadóttir og Edward H. Huijbens