Háskólinn á Akureyri

Samstarfsaðilar: RHA, HA og vinnumiðlanir víða um land.Mannafli: Að verkefninu munu koma starfsfólk RHA

Fjársjóđskistan

Samstarfsaðilar: RHA, HA og vinnumiðlanir víða um land.

Mannafli: Að verkefninu munu koma starfsfólk RHA (sérfræðingar, aðstoðarfólk), lektorar og dósentar úr hug- og félagsvísindadeild ásamt einstaklingum víða um land sem hafa misst atvinnuna.

Tími: Desember 2008 - desember 2010

Kostnaður: Fer eftir umfangi verkefnisins. Í upphafi er gert ráð fyrir um 6 milljónum á ári auk launakostnaðar skráningaaðila. Atvinnuleysisbætur þeirra koma að miklu leyti upp í þessi vinnulaun. Til að halda niðri kostnaði (t.d. vegna ferða) verður ráðið starfsfólk af atvinnuleysisskrá á hverju svæði fyrir sig.

Stutt lýsing:
Í megindráttum snýst verkefnið um að skrásetja gamlar sögusagnir, munnmælasögur, orðatiltæki, málshefðir og ýmislegt annað í þeim dúr sem er á hraðri leið með að deyja út með elstu kynslóð landsins. Þessar sögur geyma gullinn fjársjóð sem vert er að varðveita. Gögnum verður safnað saman um allt land meðal eldra fólks og munu vinnumiðlanir á hverju svæði sjá um að útvega mannskap til að vinna við verkefnið. Verkefnisstjórnun verður í höndum RHA og ráðgjafar um gagnaöflun og skráningu gagna koma úr röðum lektora og dósenta hug- og félagsvísindadeildar HA.
Verkefnið er á upphafspunkti. Sérfræðingar RHA og lektorar og dósentar HA munu þróa verkefnahugmyndina og skipuleggja viðtölin. Þegar vinnumiðlanir hafa valið fólk til að starfa við verkefnið mun það fá þjálfun og kennslu í að taka viðtöl við fólk. Öll viðtöl verða tekin upp og skrásett inn í tölvu. Vinna við verkefnið getur hafist strax.
Verkefnið hefur margvísleg samfélagsleg áhrif. Það skapar t.d. atvinnu fyrir fólk um land allt, myndar tengsl milli kynslóða og gefur ungum sem öldnum tækifæri á að taka þátt í uppbyggingu þjóðarinnar. Síðast en ekki síst mun verkefnið leiða til þess að hluti af sögu- og sagnahefð þjóðarinnar glatist ekki.

Hugmyndasmiður: Hjördís Sigursteinsdóttir, RHA

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
María Einarsdóttir

„Ţetta er lítill og persónulegur háskóli ţar sem ţú ert ekki einn af hundrađ í bekk, ţess vegna fćr mađur mikiđ út úr náminu.“

María Einarsdóttir nemandi í iđjuţjálfunarfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf