Háskólinn á Akureyri

Hér eru tvær hugmyndir steyptar saman í eina. Þá má leiða líkur að því að

Meistara- og doktorsnám

Hér eru tvær hugmyndir steyptar saman í eina. Þá má leiða líkur að því að eftirspurn eftir fjölbreyttara námsframboði á meistarastigi muni aukast nú með auknu atvinnuleysi og samdrætti í samfélaginu. Mikill fjöldi, bæði núverandi nemenda og nemenda sem nýlega hafa lokið háskólanámi (bæði á grunnstigi (BA, B.Sc) og framhaldsstigi (MA. M.Sc), hafa nú þegar misst vinnu sína, munu missa vinnu sína og/eða eiga ekki von um vinnu þegar núverandi námi líkur. Við aðstæður sem þessar, sér fólk sér þann kost vænstan að stunda frekara nám, að fjárfesta í sjálfu sér til framtíðar. Sá kostur að halda til útlanda til frekara náms er ekki vænlegur sem stendur, sérstaklega fyrir sakir óhagstæðs gengis íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Íslenskir námsmenn munu því líta sér nær og á Háskólinn á Akureyri að vera spennandi kostur fyrir þetta fólk í þessu sambandi. Einnig mun framboð á hæfum og vel menntuðum einstaklingum sem tekið gætu að sér kennslu einnig aukast í árferði sem þessu.

Ég tel að efla þurfi nám á framhaldsstigi (meistaranám/doktorsnám) við Háskólann á Akureyri til muna, fjölga námsleiðum á þessu stigi við allar deildir skólans og efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir á helsta áhrifasvæði HA, Norður- og Austurlandi. Vel menntað fólk er framtíð þessa lands og nú sem aldrei fyrr tel ég vera lag að fá hlutaðeigandi hagsmunaaðila á sveif með sér hvað þetta varðar. Sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og hagsmunasamtök munu fylkja liði bak hinu íslenska menntasamfélagi á komandi misserum og árum, með það að markmiði að reisa land okkar og þjóð við aftur. Aukið framboð á meistara- og jafnvel doktorsnámi við Háskólann á Akureyri er raunhæfur kostur sem róa þarf að öllum árum, nú sem aldrei fyrr.
Sem fyrsta skref, til að meta hina raunverulegu eftirspurn eftir námi á framhaldsstigi við HA, væri æskilegt að framkvæma þarfagreiningu. Framkvæmd slíkra þarfagreininga er alla jafna fjárfrek aðgerð og yfirleitt unnin af sérfræðingum ýmissa fyrirtækja (t.d. Capacent) og stofnanna (t.d. RHA). Margt hæft og vel menntað fólk, sem er nú á atvinnuleysisskrá, gæti hæglega unnið þá vinnu sem rándýrir sérfræðingar hafa unnið í þessu samhengi hingað til. Viðkomandi aðilar fengju greiddar þær atvinnuleysisbætur sem þeir nú þegar fá greiddar fyrir vinnu sína við verkefnin, gætu jafnframt haldið bótarétti sínum óskertum en væru með þessu móti virkjaðir til þátttöku í raunverulegum verkefnum, átaksverkefnum.

Dæmi um slíkt verkefni gæti verið þarfagreining t.d. á hugsanlegu Cand. Psych námi við Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hér yrði um að ræða vefkönnun á meðal hugsanlegs markhóps fyrir umrætt nám. Sá markhópur gæti t.d. samanstaðið af fyrrum og núverandi nemendum HA á þessu sviði og fyrrum og núverandi nemendum framhaldsskóla á þessu sviði á Norður- og Austurlandi.

Samstarfsaðilar: Í þessu tilviki: RHA-Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri (framkvæmdaraðili), Háskólinn á Akureyri, Vinnumálastofnun, Akureyrarbær og helstu heilbrigðisstofnanir á Norður- og Austurlandi.

Mannafli og tími: Áætlað er að framkvæmd á vefkönnun með 600 manna úrtaki og tilheyrandi verkefnum (eftirvinnsla, greining og framsetning niðurstaðna) taki 134 vinnustundir (33,5 vinnudaga) ef miðað er við 50% starfshlutfall þeirra sem tækju þátt í átaksverkefninu. Eitt slíkt verkefni getur því skapað atvinnu fyrir 1,5 starfsmann í heilan mánuð ef miðað er við þá mánaðarlegu vinnuskyldu sem jafnan er miðað við í hálfu starfi. Lengd hvers átaksverkefnis yrði skilgreind frekar í hverju tilviki fyrir sig. Hverju verkefni stýri t.d. sérfræðingur/verkefnisstjóri frá RHA.

Kostnaður: Kostnaður við framkvæmd hvers verkefnis af þessum toga gæti lækkað um 25% eða meira, með því að fá hæft fólk á atvinnuleysisskrá til að vinna verkefnin að stærstum hluta. Umræddir einstaklingar fengju greiddar atvinnuleysisbætur fyrir vinnu sína og mundi framlag þeirra túlkast sem átaksverkefni í tiltekinn tíma.

Hjalti S. Hjaltason - Verkefnisstjóri - RHA-Stjórnsýsla rannsókna - hjaltih@unak.is
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf