Rannsóknaráætlun verkefnisins
Heilsa og lífskjör skólanema
Inngangur
Verkefnið Heilsa og lífskjör skólanema er íslenskur hluti alþjóðlegu rannsóknarinnar Health Behaviour in School-Aged Children (HBSC), en rannsóknin er unnin að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Fjármögnun rannsóknarinnar er að öllu leyti á ábyrgð þátttökulandanna og greiða þau þátttökugjald sem stendur straum af kostnaði við alþjóðlegan þátt þess. HBSC er eitt viðamesta rannsóknarverkefni samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks. Þar er hugað að þeim þáttum sem tengjast heilsu og lífskjörum ungs fólks í víðasta skilningi, þar með talinni andlegri og líkamlegri líðan, mataræði, námsgengi, íþróttaþátttöku, tengslum við fjölskyldu og vini, kynhegðun, vímuefnanotkun, ofbeldi og félagslegum aðstæðum. Verkefnið hófst veturinn 1983/4 með þátttöku 5 landa, og hefur verið endurtekið með 4 ára millibili árin 1985/6 (13 lönd), 1989/90 (16 lönd), 1993/4 (26 lönd), 1997/8 (30 lönd), 2001/2 (36 lönd) og 2005/6 (38 lönd). Næsta umferð rannsóknarinnar fer fram veturinn 2009/10. Háskólinn á Akureyri tók í fyrsta sinn þátt í HBSC fyrir Íslands hönd vorið 2006. Þóroddur Bjarnason prófessor við HA og stjórnandi rannsóknarinnar á Íslandi kynnti alþjóðlegar niðurstöður verkefnisins á blaðamannafundi á Akureyri í júní 2008.
Þátttaka Íslands í HBSC hefur margþætt gildi. Með gagnasöfnun á Íslandi breikkar grundvöllur alþjóðlega verkefnisins og fræðilegt og hagnýtt notagildi þess eykst. Gagnvart íslenskum fræðimönnum mun þátttakan veita mikilvæga innsýn í stöðu íslenskra unglinga í alþjóðlegum samanburði. Þá verða íslensku gögnin hluti af alþjóðlegum gagnabanka HBSC, og munu íslenskir fræðimenn þar með öðlast aðgang að samanburðargögnum allt að 40 landa. Loks munu íslensk gögn rannsóknarinnar munu einnig gefa kost á margvíslegri fræðilegri og hagnýtri úrvinnslu innanlands. Þátttaka Háskólans á Akureyri í verkefninu fyrir Íslands hönd er því jafnframt vel til þess fallið að efla rannsóknastarf við skólann og treysta stöðu skólans á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Með verkefninu gefst nemendum, kennurum og öðru starfsfólki kostur á dýrmætri þjálfun í rannsóknum sem nýtast mun á ýmsum öðrum vettvangi. Gögn rannsóknarinnar eru opin öllum kennurum og nemendum skólans og geta því orðið uppspretta margvíslegra námsritgerða, fræðigreina og styrkja úr innlendum og alþjóðlegum rannsóknasjóðum. Loks felst í þátttökunni mikilvæg staðfesting og kynning á fræðastarfi við HA í innlendu og alþjóðlegu vísindasamfélagi sem og í þjóðfélaginu almennt.
Stjórn verkefnisins
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri er stjórnandi rannsóknarinnar (SR, principal investigator) á Íslandi og ber ábyrgð á framkvæmd hennar. SR velur vísindamenn til þátttöku í rannsóknarteyminu og felur þeim ábyrgð á tilteknum verkþáttum þess. Vísindamenn með rannsóknarskyldu við háskóla eða aðrar stofnanir sem taka þátt í verkefninu án sérstakrar greiðslu öðlast sjálfkrafa rétt til fræðilegra og hagnýtra birtinga á niðurstöðum þess. Sá réttur fellur ekki niður þótt vísindamaður hætti þátttöku í rannsóknarteyminu.
Afrakstur verkefnisins
Stjórnandi rannsóknarinnar, rannsóknarteymi og aðrir starfsmenn munu vinna að ýmsum verkum í samvinnu við þá aðila sem samið verður við um fjármögnun verkefnisins. Íslenskir vísindamenn verða hvattir til notkunar gagnasafnsins til ritunar fræðilegra greina til birtingar innanlands sem utan. Í öllum fræðilegum greinum sem byggja á gögnum verkefnisins skal koma fram að gögnunum hafi verið safnað af Háskólanum á Akureyri með tilstyrk þeirra aðila sem standa straum af kostnaði þess.
| Haust 2009 | Upphaf verkefnis |
| Undirbúningur spurningalista | |
| Samþykki skólastjóra | |
| Janúar 2010 | Prentun spurningalista |
| Pökkun og útsending | |
| Febrúar 2010 | Fyrirlögn í öllum skólum landsins |
| Vor 2010 | Móttaka og skönnun spurningalista |
| Ágúst 2010 | Gögn tilbúin til notkunar |
| Febrúar 2011 | Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema, helstu niðurstöður |
| Nóvember 2011 | Health behaviour in school-aged children, alþjóðlegar niðurstöður |
KOSTNAÐARÁÆTLUN
Þátttökugjald
Fullt þátttökugjald Íslands til HBSC nemur um 1.260.000 krónum á ári (EUR 7.320). Innifalið í þessu gjaldi er allur kostnaður vegna stjórnunar og samhæfingar alþjóðlega verkefnisins og reksturs gagnabanka verkefnisins. SR hefur sótt um lækkun þessa fastagjalds í um 560.000 krónur á ári (EUR 3.295) vegna smæðar og efnahagsástands á Íslandi. Heildarkostnaður við þátttökugjald 2009-2011 er áætlaður kr. 1.680.000 að því gefnu að lækkun árgjalds fáist.
Stofnkostnaður
Til að skanna spurningalista rannsóknarinnar þarf öfluga tölvu, hraðvirkan skanna, nauðsynlegan hugbúnað, skurðarvél og annan tækjabúnað. Lýðheilsustöð hefur lagt Háskólanum á Akureyri til tækjabúnað vegna þessa verkefnis að andvirði kr. 2.000.000.
Húsnæðis- og skrifstofukostnaður
HA mun sjá verkefninu fyrir húsnæði, húsgögnum, tölvubúnaði, tölvuþjónustu og skrifstofuvörum og standa straum af almennum póst- og símakostnaði vegna þess. Kostnaður vegna 20fm skrifstofu SR reiknast kr. 552.000 á ári (kr. 2.300 x 20fm x 12 mán). Kostnaður vegna tölvubúnaðar, tölvuþjónustu og afskrifta reiknast kr. 252.000 á ári. Kostnaður af skrifstofuvörum, póst- og síma kostnaði og annars þess háttar reiknast kr. 96.000 á ári. Heildarframlag HA á tímabilinu vegna húsnæðis- og skrifstofukostnaðar reiknast því vera kr. 2.700.000 á tímabilinu 2009-2011.
Ferðakostnaður
Alþjóðlegir verkefnisfundir HBSC eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári. Ferðakostnaður vegna þeirra er áætlaður 400.000 krónur á ári. Kostnaður vegna samráðsfunda og annarra ferðalaga innanlands er áætlaður 100.000 krónur á ári. Ferðakostnaður vegna verkefnisins er því áætlaður samtals 500.000 krónur á ári. Ferðakostnaður á tímabilinu 2009-2011 reiknast því vera kr. 1.500.000.
Stjórnandi rannsóknarinnar
Stjórnandi rannsóknarinnar mun vinna við verkefnið sem nemur 20% starfi. Kostnaður HA vegna þessarar vinnu reiknast 1.200.000 á ári skv. viðmiðum Rannís, eða kr. 3.600.000 á tímabilinu 2009-2011.
Sérfræðikostnaður
Aðkeypt sérfræðiþjónusta vegna verkefnisins reiknast 150 vinnustundir. Kostnaður vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónusta er áætlaður kr. 840.000 tímabilinu 2009-2011. Vinna annarra sérfræðinga innan vinnuskyldu þeirra við rannsókna-, fræðslu- og menntastofnanir skal reiknast sem framlag þeirra stofnana til verkefnisins.
Starfsmenn
Ráðinn verður starfsmaður sem vinna mun sex mánuði í fullu starfi við framkvæmd verkefnisins, en jafnframt er gert ráð fyrir ráðningu tímabundinna starfsmanna sem nemur sex mannmánuðum við undirbúning, pökkun, útsendingu, innheimtu og skönnun spurningalista. Launakostnaður vegna þessara starfa er áætlaður kr. 4.000.000. Þá er gert ráð fyrir því að háskólanemi vinni sem nemi 20% starfi við verkefnið á ári. Launakostnaður á tímabilinu 2009-2011 er því áætlaður kr. 6.000.000.
Útgáfu- og ráðstefnukostnaður
Stefnt skal að ritun skýrslna, fræðslurita og fræðigreina um niðurstöður HLS. Jafnframt verður haldin ráðstefna um rannsóknir á heilsu og lífskjörum skólanema og gefið út safnrit rannsóknaritgerða um það efni. Stjórnandi rannsóknarinnar mun leita eftir sérstökum fjárstuðningi vegna útgáfu- og ráðstefnukostnaðar.
Beinn kostnaður við fyrirlögn
Spurningalistar verði lagðir fyrir samtals 12.000 nemendur í 6., 8. og 10. bekk (100% úrtak, 4000 nemendur nettó í hverjum árgangi). Áætlaður efniskostnaður (14.000 spurningalistar, 24 bls., trúnaðarumlög, kennarabréf, bekkjarskýrslur, bekkjarumslög, skólakassar) er 1.500.000. Annar kostnaður (slithlutir skanna, sendingarkostnaður, símakostnaður, annað) er áætlaður 700.000. Beinn kostnaður á tímabilinu 2009-2011 er því áætlaður kr. 2.200.000.
Annað
Hér er um að ræða viðamikið verkefni sem krefst umtalsverðar fjármögnunar utan Háskólans á Akureyri. Þessi rannsóknaráætlun mun verða útfærð og endurskoðuð í ljósi þeirra styrkja og samstarfssamninga sem fást til verkefnisins.
Tafla 1
Heildarkostnaður við HLS verkefnið (í þús. króna)
| 2009 | 2010 | 2011 | Samtals | |
| Fastur kostnaður | ||||
| Tölvubúnaður og skanni | 2.000 | 2.000 | ||
| Stjórnandi verkefnisins | 1.200 | 1.200 | 1.200 | 3.600 |
| Húsnæðis- og skrifstofukostnaður | 900 | 900 | 900 | 2.700 |
| Samtals | 4.100 | 2.100 | 2.100 | 8.300 |
| Beinn kostnaður | ||||
| Sérfræðikostnaður | 420 | 420 | 0 | 840 |
| Starfsmenn fyrirlagnar | 1.000 | 3.000 | 0 | 4.000 |
| Fyrirlögn | 0 | 2.200 | 0 | 2.200 |
| Háskólanemi | 700 | 700 | 600 | 2.000 |
| Þátttökugjald | 560 | 560 | 560 | 1.680 |
| Ferðakostnaður | 500 | 500 | 500 | 1.500 |
| Samtals | 3.180 | 7.380 | 1.660 | 12.220 |
| HEILDARKOSTNAÐUR | 7.280 | 9.480 | 3.760 | 20.520 |


