Háskólinn á Akureyri

Samstarfsaðilar: RHA, HA og Miðlun á AkureyriMannafli: Að verkefninu munu koma starfsfólk RHA (sérfræðingar,

Heilsa og líđan ţjóđarinnar

Samstarfsaðilar: RHA, HA og Miðlun á Akureyri

Mannafli: Að verkefninu munu koma starfsfólk RHA (sérfræðingar, aðstoðarfólk), lektorar og dósentar úr hug- og félagsvísindadeild og heilbrigðisdeild og starfsfólk úthringivers Miðlunar ehf. á Akureyri. Einnig munu einstaklingar verða ráðnir víða um land til að taka viðtöl reglulega og koma viðtölum á tölvutækt form.

Tími: Desember 2008 - desember 2010

Kostnaður: U.þ.b. 16 milljónir á ári (eftir umfangi) á móti koma atvinnuleysisbætur um 5 starfsmanna á ársgrundvelli.

Stutt lýsing:

Starfsfólk RHA, HA og Miðlunar ehf. taka saman höndum og framkvæma símakannanir og viðtöl meðal landsmanna varðandi andlega líðan og heilsu, atvinnu- og fjármálaöryggi og aðstæður barna á heimilum. Hannaður verður spurningalisti og spurningaskema sem verður endurtekinn reglulega, a.m.k. átta sinnum næstu tvö árin. Fylgst verður með breytingum milli athugana og staðan tekin á hverjum tímapunkti. Lögð verður áhersla á kynja- og búsetuvinkil.
Verkefnið er á upphafspunkti. Öllum starfsmönnun Miðlunar ehf. á Akureyri hefur verið sagt upp störfum en verkefni sem þetta kemur í veg fyrir að þekking og störf tapist úr héraði. Starfsfólk innan RHA og HA hafa mikla reynslu og þekkingu á athugun sem þessari og jafnframt myndi verkefnið styrkja tengslin og samstarfið á milli þessara aðila enn frekar. Þetta mun einnig hugsanlega leiða til fleiri sameiginlegra verkefni á þessu sviði og renna styrkari stoðum undir rekstrargrundvöll úthringivers Miðlunar ehf. hér á Akureyri.
Verkefnið gefur ýmsum aðilum (m.a. stjórnvöldum, stefnumótunaraðilum og forsvarsmönnum sveitarfélaga) mikilvægar upplýsingar varðandi ástand og líðan fjölskyldna í landinu á hverjum tímapunkti og hvernig þær eru að takast á við þrengingar dagsins og framtíðarinnar.

Hugmyndasmiður: Hjördís Sigursteinsdóttir, RHA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfrćđin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alţjóđlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf