Stutt lýsing:
Markmið verkefnisins er að nýta líftækni til að einangra, skilgreina og þróa lífvirk íblöndunarefni úr vannýttum íslenskum sjávarlífverum, með áherslu á auk- og bætiefni fyrir snyrtivörur og matvæli. Markmiðið er einnig að styðja þekkingaruppbyggingu í atvinnulífi á landsbyggðinni samhliða uppbyggingu á þekkingu og færni við Háskólann á Akureyri.
Matvæla- og snyrtivörumarkaður hefur í vaxandi mæli þörf fyrir ný og endurbætt efni til að tryggja gæði, öryggi og sérhæfða virkni þessara vara. Í þessu sambandi má nefna rot- og þráavarnarefni og önnur efni með sérhæfða lífvirkni hvort heldur er innvortis (svo sem bætiefni) eða útvortis (húðvörur með græðandi virkni). Þekkt er að þang og þari búa yfir eiginleikum sem uppfylla sum eða öll þessara skilyrða og einnig benda nýlegar rannsóknir til að aðrar sjávarlífverur þ.m.t. örverur búa yfir hæfileikum til að framleiða efni með nefndum eiginleikum. Þessu verkefni er ætlað að leita að og þróa efni sem geta nýst í matvælum og snyrtivörum til að bæta gæði, öryggi og virkni þeirra. Sérstaklega er horft til rotvarnarefna, þráavarnarefna, efna sem skerma af útfjólublátt ljós (sólvörn) og efna sem hafa græðandi virkni fyrir snyrtivörur.
Samstarfsaðilar: Þörungaverksmiðjan, SERO, MarinAgra, Pharmarctica
Mannafli: Hægt að bæta við amk 1 manni strax.
Tími: Verkefnið er í gangi. Um er að ræða nýráðningu í 12 mánuði amk frá og með 1 des. nk.
Kostnaður: Launakostnaður í 12 mannmánuðir @ 350 per mmán eða um 4,2 mkr. Annar kostnaður fellur á verkefnið.
Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA