Háskólinn á Akureyri

Stefnumótun í ferðamálum á landsvísu - kortlagning auðlindarMarkmið stefnumótunarinnar er að

Kortlagning auđlindar

Stefnumótun í ferðamálum á landsvísu - kortlagning auðlindar

Markmið stefnumótunarinnar er að greina möguleika til uppbyggingar á ferðaþjónustu til framtíðar, út frá úttekt á því sem svæði landsins hafa upp á að bjóða. Úttektin, er kortlagning á auðlindum ferðaþjónustu á landinu sem unnin er í samvinnu við lykil hagsmunaaðila og þá sem þekkja vel til á hverju svæði. Allir hagsmunaaðilar munu einnig koma að vinnunni á tveggja daga námskeiði og hugarflugsfundi um stefnumótun á svæðinu sem haldinn verður í byrjun maí. Úttektin er unnin af íslenskum sérfræðingum í málefnum ferðaþjónustu í samvinnu við lykilaðila en greining og kortavinna er í höndum erlendra sérfræðinga og byggir á þeirra vinnu á ýmsum svæðum hvaðanæva úr heiminum. Í sameiningu munu síðan rannsakendur og hagsmunaaðilar vinna stefnumótun til fimm ára, en áætlað er að vinnan verði endurtekinn að þeim tíma liðnum.

Samstarfsaðilar: Rannsóknamiðstöð ferðamála vinnur að þessu verkefni með Háskóla Íslands og New Zealand Tourism Research Institute

Mannafli: Fólk sem sinnt gæti söfnun kortagagna í samstarfi við heimamenn á svæðum

Tími: 1 ár

Kostnaður: 5.000.000

Hugmyndasmiður: Edward H. Huijbens
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Björg Jónína Gunnarsdóttir

„Bćđi námiđ og umhverfiđ hafa ţroskađ mig sem einstakling. Ég er farin ađ setja upp „iđjugleraugun“ og horfi í gegnum ţau međ ađra sýn á heiminn. “

Björg Jónína Gunnarsdóttir iđjuţjálfi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf