Háskólinn á Akureyri

Samstarfsaðilar: Verkefni mögulega unnið í samstarfi RHA og Lestrarseturs skólaþróunarsviðs Kennaradeildar

Íslenskt lestrarpróf

Samstarfsaðilar: Verkefni mögulega unnið í samstarfi RHA og Lestrarseturs skólaþróunarsviðs Kennaradeildar HA

Mannafli: A.m.k. 2 færu með stjórn verkefnisins og auk þess myndu vinna hugsanlega geta nýst við verkefnavinnu nemenda í kennaradeild HA og sálfræðinema við HA.

Tími: Fyrirlögn færi fram 2 á fyrri hluta skólaárs fyrir hvern árgang og seinni hluta skólaárs fyrir hvern árgang. Áætlaður tími miðað við fullt vinnuafl væri 9 mánuðir.

Kostnaður: ?

Stutt lýsing:
Íslenskt lestrarpróf sem metur hljóðalestur, færni og mögulega framfarir í lestri barna í 1.-4. Bekk íslenskra barna. Prófið sjálft var samið og forprófað í tengslum við BA verkefni í sálfræði við HÍ annarsvegar og sem nýsköpunarverkefni hinsvegar. Nýsköpunarverkefnið fékk tilnefningu til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands og fékk sérstaka viðurkenningu fyrir nýsköpun árið 2005 (http://www.forseti.is/Forsida/Verdlaunogvidurkenningar/NyskopunarverdlaunforsetaIslands/Verdlaunahafar/). Verkefnið sem hér um ræðir væri þá frekari prófun og stöðlun á slíku prófi. Lokaafurðin er fullbúið lesskimunarpróf.
Sigrún Sif Jóelsdóttir og Valgerður Ólafsdóttir (2005). Drög að íslensku lestrarprófi: orða- og orðleysu- lestur. Lokaverkefni við Háskóla Íslands: Reykjavík.

Lestrarpróf sem metur grunnfærni í lestri er ekki til. Prófið má nota sem skimunarpróf sem greinir vandkvæði við hljóðalestur frá hæglæsi. Greina þá í sundur sem eiga erfitt með að greina samband hljóðs og stafs og þeirra sem þurfa að æfa lestur og svo þá sem þurfa ef til vill að bæta aðra þætti lesturs.
Þar sem aðrir þættir lesturs og ritunar byggja á því að grunnfærni í lestri séu til staðar má aðlaga kennslu frekar að þörfum nemenda og efla þannig lestur með viðeigandi aðferð. (Til að mynda lesskilningur og svo ritun).
Prófið er mjög einfalt í fyrilögn og tekur ekki langan tíma.
Niðurstöður eru auðtúlkanlegar.
Prófið má nota til að greina merki um lesblindu með einföldum hætti.
Prófið má nota til að meta framfarir í lestri við tiltekin inngrip eða aðferðir þar sem það kemur í tveimur útgáfum.
Verkefnið yrði hluti af því að efla starfsemi Lestrarseturs við HA og þarmeð öflugt tæki til aðlögunar á lestrarkennslu almennt í fyrstu bekkjum grunnskóla á landinu.

Hugmyndasmiður:

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
María Einarsdóttir

„Ţetta er lítill og persónulegur háskóli ţar sem ţú ert ekki einn af hundrađ í bekk, ţess vegna fćr mađur mikiđ út úr náminu.“

María Einarsdóttir nemandi í iđjuţjálfunarfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf