Stutt lýsing:
Í hafinu "leynast" lífræn og ólífræn efni auk lífvera sem ekki eru nýtt í dag. Talið er að eingöngu um 1% lífvera sjávar hafi verið kannaðar að einhverju marki. Lífríki hafsins hefur vissa sérstöðu sem menn telja gefa tilefni til að þar séu að finna efni með áður óþekkta eiginleika, eiginleika sem t.d. lyfjaiðnaður leitar eftir. Lífverur í hafinu eru umluktar vatni og verða þar af leiðandi fyrir áreitni sem þær þurfa að verja sig gegn. Sjór er að jafnaði frekar kaldur og því er starfsemi lífvera aðlagaður þeim aðstæðum þ.m.t. bygging efna, virkni ensíma o.s.frv. Sjávarlífverur framleiða einstök lífvirk efni til fjölgunar, samskipta, til að koma í veg fyrir að vera étin, verjast sýkingum og samkeppni. Þessi efni geta verið uppspretta nýrra lyfja, ensíma og "bio-sensora.".
Markmið verkefnisins er að beita nýjustu tækni við skimun og könnun á eiginleikum lífefna úr sjó og sjávarfangi með það að markmiði að þróa vörur á markað fyrir heilsuvörur (þ.m.t. lyf, snyrtivörur og fæðubótarefni) og til annarra iðnaðarnota.
Undirverkefni:
1. efni með örveruhemjandi virkni
2. efni með þrávarnareiginleika (t.d. SOD)
3. efni sem hemja vöxt krabbabeinsfruma
4. efni sem hemja plöntuvöxt
5. ensím í þvotta- og sótthreinsiefni.
6. ensím til líftækni og iðnaðarnota
7. bólgueyðandi efni
8. frostverjandi prótein
9. fjölsykrur með lífvirkni
10. bio-keramik í nanotækni
11. kalk
12. efni sem hindra myndun á "bio-filmu"
13. efni sem henta í skimara "bio-sensora" og önnur mælitæki.
14. nýting aðferða til DNA greiningar til að skilgreina vistkerfi sjávar
15. nýting DNA-greiningu til að leita að sérhæfðri virkni í lífverum
Samstarfsaðilar: BioPol ehf, atvinnuþróunarfélög og aðrir
Mannafli: 4-5 ársstörf, hægt er að byrja hægt og láta þetta vaxa.
Tími: Um er að ræða nýráðningu í 12 mánuði amk frá og með 1 des. nk.
Kostnaður: Launakostnaður í 48 mannmánuðir @ 350 per mmán eða um 16,8 mkr.
Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA