Háskólinn á Akureyri

Nýsköpunarverkefni í þágu atvinnulífs og háskóla: LífEtanólSamstarfsaðilar: Mannvit

Framleiđsla á lífeldsneyti (etanóli)

Nýsköpunarverkefni í þágu atvinnulífs og háskóla: LífEtanól

Samstarfsaðilar:
Mannvit ehf

Mannafli: 2-3

Tími: 3 ár

Kostnaður: 50 milljónir / Mótframlag er til við HA (Jóhann Örlygsson)

Stutt lýsing
Framleiðsla á lífeldsneyti (etanóli) með hitakærum bakteríum. Verkefnið er hluti af orkulíftækni sem hefur verið byggð upp við Háskólann á Akureyri (sjá hér að framan). Verkefnið er hluti af verkefninu "LífEtanól" sem hefur verið í gang við Háskólann á Akureyri í tvö ár með styrk úr Tækniþróunarsjóði í samvinnu við líftæknifyrirtækið Prokaria og verkfræðistofuna Mannvit. Þetta verkefni mun klárast vorið 2009 og tveir meistaranemar útskrifast. Þessir nemendur hafa verið á launum og því hefur vinna þeirra ásamt vinnu leiðbeinenda gefið af sér um 5 ársverk sem nýsköpunarverkefni. Sú vinna sem framkvæmd hefur verið fólst aðallega í einangrun og greiningu á etanólframleiðandi bakteríustofnum og nú er til stofnasafn við skólann með yfir 60 bakteríutegundum. Í haust var síðan sótt um framhald á LífEtanól verkefninu í Tækniþróunarsjóð. Í verkefninu verður unnið áfram með valda stofna úr þessu stofnasafni. Gerð verður könnun á hvaða stofnar eru bestir hvað varðar etanólframleiðslu, etanól þol og nýtni framleiðslunnar. Gerðar verða einfaldar gerjunartilraunir á einföldum sykrum, en einnig á íslenskum lífmassa (gras, hálmur, pappír). Í verkefninu mun verkfræðistofan Mannvit gera hagkvæmnimat á framleiðslunni sem mun verða kynnt fjárfestum með það að markmiði að stofnuð verði framleiðslueining (fyrirtæki) sem færi í framleiðslu á etanóli úr íslensku hráefni sem myndi nægja til að blanda etanól í bensín (5% = E5). Hagnýting verkefnisins er gríðarleg. Íslendingar flytja inn meira en 160.000 tonn af bensíni árlega. Sá innflutningur myndi minnka og íslendingar verða minna háðir innflutningi á jarðefnaeldsneyti. Einnig er mjög mikilvægt að íslendingar marki sér stefnu í að innlima þær reglugerðir sem Evrópubandalagið hefur sett aðildarþjóðum varðandi aukningu á lífeldsneyti í aðildarlöndum þess.

Hugmyndasmiður: Jóhann Örlygsson (HA)/Ásgeir Ívarsson (Mannvit)
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Björg Jónína Gunnarsdóttir

„Bćđi námiđ og umhverfiđ hafa ţroskađ mig sem einstakling. Ég er farin ađ setja upp „iđjugleraugun“ og horfi í gegnum ţau međ ađra sýn á heiminn. “

Björg Jónína Gunnarsdóttir iđjuţjálfi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf