Mannafli: 1-3
Tími: 4-7 mánuðir
Kostnaður: 10-15 milljónir
Stutt lýsing
Lífmassaver í Eyjafirði: uppbyggingu lífmassavers (biorefinery) í Eyjafirði þar sem markmiðið er að verði arðbær framleiðsla á lífdísil, metangasi og etanóli í umtalsverðu magni til nota í stað innflutts jarðefnaeldsneytis.
Staða verkefnis:
Í nóvember hefjast tilraunir með framleiðslu á lífdísil á Akureyri. Fyrirhugað er að smáskala framleiðsla hefjist vorið 2009. Hráefnið mun að mestu koma frá veitingahúsum og kjötvinnslum. Fyrirhugað er að skoða vinnslu metans á sorphaugum í Glerárdal og eru vonir bundnar við að fyrstu rannsóknir á því liggi fyrir vorið 2009.
Framleiðsla etanóls úr „flóknum" lífmassa s.s. úrgangspappír, grasi og hampi er töluvert flóknari en framleiðsla lífdísils og metangass, en framleiðsluaðferðir eru í stöðugri þróun og hefur notkun etanóls sem eldsneytis verið að aukast jafnt og þétt
erlendis á síðustu árum. Mannvit og Háskólinn á Akureyri hafa átt í samstarfi um rannsóknir á þessu sviði sl. 2 ár í verkefninu LífEtanól sem m.a. hefur verið styrkt af Tækniþróunarsjóði
Í tengslum við lífmassaver myndu verða til m.a. hefðbundin framleiðslustörf ásamt störfum fyrir verkfræðinga og efnafræðinga auk starfa við dreifingu afurða og öflunar hráefnis, skrifstofustarfa og stjórnunarstarfa. Rekstur lífmassavers myndi einnig skapa afleidd störf, s.s. vegna ýmiskonar þjónustu, auk þess sem starfsemin myndi styðja við rannsóknir á lífeldsneyti. Síðast, en ekki síst, gæti uppbygging þekkingar á framleiðslu og notkun lífeldsneytis opnað verkfræðingum og vísindamönnum dyr að
verkefnum erlendis.
Ávinningur af rekstri lífmassaverksmiðju - á öllum stigum - og notkun lífeldsneytis gæti m.a. orðið eftirfarandi:
- Fjárhagslegur.
- Ný atvinnutækifæri - nýsköpun í atvinnulífi.
- Hagkvæm afsetning/nýting ýmiskonar lífræns úrgangs - aukin sjálfbærni samfélagsins.
- Minni losun gróðurhúsalofttegunda - verður hugsanlega hægt að meta til fjár á komandi árum með tilkomu losunarkvóta.
- Framleiðsla innlends eldsneytis - minni innflutningur jarðefnaeldsneytis og þ.a.l. aukið orkuöryggi.
- Jákvæð ímynd framleiðanda, notenda og samfélagsins í heild.
- Uppbygging þekkingar á framleiðslu og notkun lífeldsneytis - samstarf við mennta- og rannsóknarstofnanir.
- Útflutningur þekkingar.
Verði niðurstöður fýsileikaathugana jákvæðar er gert ráð fyrir að lífmassaverið verði byggt í fjórum áföngum. Í eftirfarandi töflu kemur fram hvenær hver áfangi bætist við lífmassaverið og heildarfjöldi ársverka sem tengjast framleiðslunni beint eftir að hver framleiðsluáfangi hefur verið tekið í notkun.
| Áfangar lífmassavers | Fyrsta rekstrarár áfanga | Fjöldi ársverka við lífmassaver | |
| 1. | Lífdísilframleiðsla - þróunar- og samfélagasverkefni | 2009 | 1,5 |
| 2. | Viðbót: Aukin lífdísilframleiðsla | 2011 | 10 |
| 3. | Viðbót: Metangasframleiðsla | 2012 | 20 |
| 4. | Viðbót: Etanólframleiðsla | 2013 | 30 |
Hugmyndasmiður: Mannvit hf. og Orkusetur




