Nýsköpunarverkefni í þágu atvinnulífs og háskóla: Framleiðsla á lífeldsneyti og verðmætum afurðum úr glýseról með hitakærum bakteríum
Samstarfsaðilar: Mannvit ehf
Mannafli: 1-2
Tími: 2 ár
Kostnaður: 16 milljónir
Stutt lýsing
Framleiðsla á verðmætum líftæknilegum afurðum (1,3-propanediol, vetni og etanól) úr glýseróli með hitakærum bakteríum. Verkefnið er hluti af orkulíftækni sem hefur verið byggð upp við Háskólann á Akureyri (sjá hér að framan). Verkefnið Glýseról hefur verið í gangi við Háskólann á Akureyri í um tvö ár með styrk úr Líftæknineti í auðlindanýtingu. Ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni er að í raun er offramleiðsla á glýseróli í heiminum í dag vegna aukinnar framleiðslu á lífdísil (glýseról er aukaafurði í framleiðsluferlinu). Því hefur áhugi manna beinst mjög að því að búa til verðmæti úr þessu tiltölulega ódýra hráefni. Þetta verkefni hefur verið keyrt við Háskólinn á Akureyri sem meistaraverkefni en hann hefur verið á launum auk vinnuframlags leiðbeinanda, samtals um 2,5 ársverk. Rannsóknir á þessum tveimur árum hafa fyrst og fremst falist í að einangra og greina hitakærar bakteríur sem brjóta niður glýseról og geta myndað verðmætar afurðir í formi lífeldsneytis (vetni og etanól) og efnasambandsins 1,3-propanediol sem er mikið notað í m.a. snyrtivörur og í margvíslegri efnaframleiðslu. Nú þegar hafa verið einangraðir nokkrir stofnar af hitakærum bakteríum sem geta brotið niður glýseról og framleitt 1,3-propanediol, etanól og vetni. Næstu skref í verkefninu er að kanna hversu öflugir stofnarnir eru og gera hagkvæmnimat á framleiðsluferlinu. Í verkefninu mun verkfræðistofan Mannvit gera hagkvæmnimat á framleiðslunni sem mun verða kynnt fjárfestum með það að markmiði að stofnað verði framleiðslueining (fyrirtæki) sem færi í framleiðslu á verðmætum afurðum úr glýseróli.
Hugmyndasmiður: Jóhann Örlygsson (HA)/Ásgeir Ívarsson (Mannvit)