Háskólinn á Akureyri

Hringvegurinn liggur nú á bökkum Mývatns og fer í stórum krók í kringum vatnið. Tveggja

Stytting hringvegar viđ Mývatn

Hringvegurinn liggur nú á bökkum Mývatns og fer í stórum krók í kringum vatnið. Tveggja spurninga má spyrja varðandi það.

  • Er heppilegt að umferðaræð með þungaumferð þræði sig eftir bökkum Mývatns, í gegnum fjölbreyttasta fuglalíf Evrópu og einnar mestu náttúruperlu Íslands?
  • Er hægt að sleppa við krókinn með annarri leið og stytta þannig Hringveginn?

Til er önnur leið sem styttir leiðina umtalsvert og tekur stærstan hluta umferðarinnar af bökkum Mývatns. Þá leið má sjá á myndinni hér að neðan.

Nýr vegur við Mývatn

Nýr vegur sem er sýndur á myndinni er um 17 km langur og styttir Hringveginn um 9 km. Eins og sjá má er krókurinn til að komast niður að Laxá nokkuð mikill. Eitt atriðið til að athuga er hvort hægt sé að hækka nýja brú yfir Laxá þannig að krókurinn yrði minni.

Staða verkefnisins: Á frumstigi en hefur verið stungið að ýmsum aðilum svo sem Eyþingi.

Hvað þarf að gera: Meta kostnað, skoða vegstæði og önnur vegtæknileg atriði, skoða friðlýsingar, skoða skipulagsmál, skoða áhrif á ferðaþjónustu við Mývatn. Getur núverandi Hringvegur á bökkum Mývatns orðið skilgreindur ferðamannavegur? Er möguleiki að gera nýja veginn í einkaframkvæmd og rukka veggjald. Hvað getur einkaframkvæmd staðið undir stórum hluta vegagerðarinnar.

Fjármagns og mannaflaþörf: Nánast eingöngu mannafli.

Fyrir hvaða fólk: Fyrir einstaklinga með verkfræði eða tæknifræðikunnáttu, viðskiptafræðinga, fólk sem tengist ferðamennsku og náttúruvernd.

Hugsanlegir samstarfsaðilar: RHA, vegagerðin á Norðaustursvæði, sveitarfélögin á svæðinu, Eyþing og fleiri.

Tími: 1-2 ár

Jón Þorvaldur Heiðarsson
HA

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf