Háskólinn á Akureyri

KynningKoma á fót alþjóðlegri norðurslóðamiðstöð á Akureyri með stuðningi

Alţjóđleg norđurslóđamiđstöđ á Akureyri

Kynning
Koma á fót alþjóðlegri norðurslóðamiðstöð á Akureyri með stuðningi stjórnvalda, stofnana og fyrirtækja sem sjá sér hag í slíkri miðstöð.

Hlutverk miðstöðvarinnar væri að bjóða upp á aðstöðu og starfrækja skrifstofur alþjóðlegra samtaka sem starfa að málefnum norðurslóða og veita stjórnvöldum ráðgjöf um mótun stefnu um þessi málefni. Hér má nefna Northern Forum, Rannsóknaþing norðursins, Háskóli norðurslóða, samtök ungra vísindamanna á sviði heimskautamálefna, norðurslóðaáætlun norrænu ráðherranefndarinnar og Arctic Portal (Norðurslóðagátt).

Þessi miðstöð gæti dregið til sín störf og fjármagn frá alþjóðlegum stofunum sem fást við rannsóknir á norðurslóðum. Reiknað er með að hvert starf við þessa miðstöð gæti skapað fjögur ný störf á þessu sviði.

Akureyri hefur verið að þróast sem alþjóðleg miðstöð fyrir norðurslóðasamstarf. Háskólinn á Akureyri hefur á undanförnum árum kennt námskeið í norðurslóðafræðum og þar er hafið framhaldsnám í heimskautarétti (Polar Law) sem er eina sinnar tegundar í heiminum. Háskólinn á Akureyri er í virku samstarfi við háskóla norðurslóða um nám og kennslu og nemenda- og kennaraskipti. Háskólinn á Akureyri hefur frá árinu 2000 rekið skrifstofu Rannsóknaþings Norðursins (Northern Research Forum) í samvinnu við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Rannsóknaþing norðursins hélt sína fimmtu alþjóðlegu ráðstefnu í Anchorage, Alaska í september 2008. Nokkrar norðurslóðastofnanir hafa aðsetur á Borgum, rannsóknahúsi Háskólans, og má þar nefna Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og skrifstofur Norðurskautsráðsins, PAME og CAFF. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er ætlað innlent og alþjóðlegt hlutverk viðvíkjandi rannsóknum, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og samvinnu á sviði sjálfbærrar þróunar og umhverfismála á norðurslóðum. Skrifstofa PAME fjallar um verndun hafsvæða í norðri og skrifstofa CAFF fæst við verndun fjölbreytileika lífs og náttúru á norðurslóðum. Auk þess er gáttin Arctic Portal starfrækt frá Akureyri en gáttin þjónar m.a. Norðurskautsráðinu og stofnunum þess, Alþjóðaheimskautsárinu og fleiri norðurslóðastofnunum og verkefnum.

Málefni norðurslóða vega æ þyngra á heimsvísu og stjórnvöld í nágrannaríkjum leggja sífellt meiri áherslu á stefnumótun í þessum málaflokki og þróun viðbragðsáætlana við örum breytingum. Virk þátttaka íslenskra vísindamanna í norðurslóðasamstarfi hefur stuðlað að því að þekking þeirra á þeim vandamálum og tækifærum sem fólk á norðurslóðum fæst við er orðin afar eftirsótt ekki aðeins á norðurslóðum heldur einnig víða um heim. Þannig hefur að undanförnu orðið vart við aukinn áhuga á því að Akureyri verði aðsetur fleiri alþjóðastofnana sem fást við málefni norðurslóða.

Samstarfsaðilar: Utanríkisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, önnur ráðuneyti, Akureyrabær, Háskólinn á Akureyri, aðrir háskólar, rannsóknastofnanir, fyrirtæki.

Mannafli: 3-4 ársverk gætu skapað 9-12 ný störf

Tími: Gæti hafið störf á þessu ári

Kostnaður: 25-35 mkr. á ári

Hugmynd: Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir RHA.

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf