Öndvegissetur í heilbrigðisvísindum við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri
Sótt var um verkefnið í markáætlun á sviði vísinda- og tækni 2009-2015, Öndvegissetur og rannsóknaklasar.
Markmið verkefnisins er að efla rannsóknir sem beinast að árangursríkum forvörnum og heilsueflingu, bættri heilsuvernd, endurhæfingu og nýjungum í heilbrigðisþjónustu.
Ljóst er að aðstæður í heilbrigðisþjónustu, öldrunarþjónustu og félagsþjónustu munu breytast verulega á næstu árum vegna breytinga á aldurdreifingu íbúa og lífsstíl og framfara í heilbrigðisvísindum. Auka þarf sérstaklega rannsóknir sem tengjast lífsstíl s.s. hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini, sykursýki, og offitu. Mikilvægt er að fá fram skilning á því hvað stýrir lífsstíl, mataræði og hreyfingu og hvaða leiðir eru bestar til að stuðla að lýðheilsu og lífsgæðum. Lagt er til að Akureyri verði notað sem heilsulíkan þar sem samstilltu átaki í fræðslu, forvörnum, skimun, greiningu og meðferð og breyttri hegðun er beitt til að draga úr tíðni algengra sjúkdóma. Mikill mannauður er til á Akureyri í heilbrigðisdeild HA, á Sjúkrahúsi Akureyrar (FSA) og á heilsugæslustöðinni (HAK) og því er auðvelt að skipuleggja meðferðarrannsóknir og framkvæma þær og meta árangur af meðferðinni.
Þessu til viðbótar má benda á að mikill auður felst í heitu vatni á Íslandi, t.d. í Jarðböðunum við Mývatn, því er brýnt að rannsaka heitt vatn og heilbrigði og tengja þær rannsóknir við heilsutengda ferðaþjónustu.
Samstarfsaðilar eru Akureyrabær, HAK, FSA , Rannsókna- og þróunarmiðstöð HA, Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð.
Tími: Verkefni getur hafist 1. janúar 2009
Kostnaður: Er einhver, sjá umsókn um Öndvegissetur. Hinsvegar er hægt að lágmarka kostnað með því að tengja framhaldsnám í í heilbrigðisvísindum við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri við verkefnið.
Tengiliður umsóknar: Dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor HA, sigridur@unak.is
Sjá nánari upplýsingar um verkefnið