Háskólinn á Akureyri

Stutt lýsing:Markmið verkefnisins er að bæta gæði og tryggja geymsluþol á hráefni, ferskum og

Óson ís

Stutt lýsing:
Markmið verkefnisins er að bæta gæði og tryggja geymsluþol á hráefni, ferskum og léttsöltuðum afurðum úr sjávarfangi. Þetta verður gert með því að nota óson til að fækka örverum, draga úr fjölgun þeirra og þar með skemmdum.. Óson verður blandað vinnsluvatni og það notað til að framleiða ósonís og ósonpækil, auk þess sem ósonvatn verður nýtt til þvotta á fiski, þrifa á vinnslubúnaði, fiskikörum og vinnsluumhverfi. Þetta munn leiða til aukinna gæða afurða, minni kostnaðar og auka þannig framleiðni og verðmætasköpun við vinnslu sjávarafangs.

Geymsluþol á ferskum og léttsöltuðum fiski takmarkast fyrst of fremst af starfsemi baktería á roði, í holdi og kviðarholi þeirra. Áhrifaríkasta aðgerðin til að draga úr neikvæðum áhrifum baktería er að halda fjölda og virkni þeirra í lágmarki. Fram að þessu hefur skort aðferð til að ná þessu markmiði sem á sama tíma tryggir ímynd ferskleika. Verkefnið gengur út á að nýta nýja tækni til að framleiða og skammta nákvæmlega í vatnsblöndu bakteríudrepandi óson. Þetta ósonblandaða vatn verður nýtt til að framleiða skelíss, saltpækil auk skolunar á hráefni og almennra þrifa í vinnslusal.

Samstarfsaðilar: Raf ehf , Brim hf, Samherji hf og Vísir hf

Mannafli: Hægt að bæta við amk 1 manni strax

Tími: Verkefnið er í gangi. Um er að ræða nýráðningu í 12 mánuði amk frá og með 1 des. nk.

Kostnaður: Launakostnaður í 6 mannmánuðir @ 350 per mmán eða um 2,1 mkr. Annar kostnaður fellur á verkefnið.

Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Alma Kristín Gísladóttir

„Ţađ kom aldrei neitt annađ til greina en ađ fara í HA. Námiđ er spennandi og opnar ýmsa möguleika til framtíđar. “

Alma Kristín Gísladóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf