Háskólinn á Akureyri

Stutt lýsing:Markmið verkefnisins er að styrkja og auka samkeppnishæfni hagnýtra nýsköpunarverkefna sem hafa

Rannsóknastofa í hagnýtri örverufrćđi viđ HA

Stutt lýsing:
Markmið verkefnisins er að styrkja og auka samkeppnishæfni hagnýtra nýsköpunarverkefna sem hafa það að leiðarljósi að þróa virk íblöndunarefni úr sjávarlífverum í samvinnu við starfandi fyrirtæki eða með stofnun nýrra fyrirtækja. Einnig er markmið verkefnisins að þróa aðrar lausnir sem verða til við rekstur nefndra verkefna.
Verkefnið hefur verið í gangi í þrjú ár og þegar hefur talsverður árangur náðst. Þannig hefur verkefnið verið bakhjarl margra verkefna á þessu sviði og með beinum eða óbeinum hætti tekið þátt í fjölgun starfa á landsbyggðinni. Benda má að líftæknifyrirtækið BioPol á Skagaströnd var stofnað að hluta til á hugmyndum sem urðu til í tengslum við starfsemi rannsóknastofunnar. Þá var fyrirtækið MarinAgra stofnað sem framhald verkefna sem tengist stofunni. Starfsemi stofunnar tengist fjölda annarra fyrirtækja um allt land.
Áframhaldandi rekstur verkefnis er líklegur til að skila nýjum vörum sem geta orðið grunnur fyrirtækja eða aukið starfsemi þegar starfandi fyrirtækja. Þau verkenni sem enn bíða úrlausna eru einangrun og greining efna sem hemja örveru- og frumuvöxt, hafa áburðarvirkni, hindra þránun, binda vatn, eru bragð- eða litarefni og geta hentað sem líforka til að nefna nokkur.

Samstarfsaðilar.
Meðal fyrirtækja sem verkefnið og tengd verkefni hafa átt í samstarfi við eru: SERO ehf, BioPol ehf, Þörungaverksmiðjan hf, Raf ehf, Pharmarctica, Íslenskur kúffiskur, Vísir, Ektafiskur, Brim, Sæplast, Samherji auk annarra fyrirtækja á íslandi og erlendis.

Mannafli:
Nú eru þegar starfa 4-5 einstaklingar í verkefnum tengslum við rekstur verkefna rannsóknastofu í hagnýtri örverufræði og hægt væri að bæta við öðru eins í þau verkefni sem þegar eru í gangi.

Tími:
Verkefnið er í gangi og hægt væri að taka inn nýja starfsmenn með stuttum fyrirvara.

Kostnaður:
Kostnaður við hvern starfsmann eru laun, efniskostnaður og önnur aðföng vegna rekstrar verkefna er varlega áætlaður um 5 til 7 milljónir króna. Þegar er styrkur fyrir hendi í nokkrum verkefnum sem mótframlag.

Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Gústaf Línberg Kristjánsson

„Sjávarútvegsfrćđi er ţverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi.“

Gústaf Línberg Kristjánsson nemandi í sjávarútvegsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf