Háskólinn á Akureyri

Hér til hliðar má sjá nýsköpunarhugmyndir sem tengjast sjávarútvegi.Verkefnahópur

Sjávarútvegsmál

SjávarútvegurHér til hliðar má sjá nýsköpunarhugmyndir sem tengjast sjávarútvegi.

Verkefnahópur
Þær hugmyndir að verkefnum og öðrum aðgerðum sem koma fram hér að neðan eru teknar saman úr hugaflugsfundi með starfsmönnum í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri, nemendum í sjávarútvegsfræðum af öllum árgöngum sem og útskrifuðum sjávarútvegsfræðingum. Markmiðið var að koma með eins margar hugmyndir að aðgerðum eða verkefnum og hægt væri. Upphaflega var ætlunin að fjalla bara um sjávarútvegsmál og málefni tengd hafinu en mikið af öðrum hugmyndum spunnust einnig upp. Þær eru hér látnar fljóta með, einnig eru hér hugmyndir sem mundu af öllu skynsömu fólki verða dæmdar út í hött en við gengum í þetta með því hugarfari að ekkert væri bannað og látum það því standa hér. Við erum svo í litlum vafa um það að fleiri hugmyndir hefðu komið upp ef meiri tími hefði gefist. Við viljum einnig taka fram að margar þessara hugmynd hafa eflaust skotið upp kollinum áður, ekkert er nýtt undir sólinni,en tími hefur ekki unnist til þess hér að fara yfir forsögu þeirra. Að neðan eru forsendur sem við gáfum okkur við þessa vinnu og athugasemdir.

Skammtímaáhrif verkefna
Spara gjaldeyrisútstreymi (minnka innflutning)
Meira gjaldeyrisinnstreymi (auka útflutning)
Tappa af atvinnumarkaði (fjölga nemendum í skólum og ráða sérfræðinga í rannsóknarstörf; á atvinnuleysisbótum)

Langtímaáhrif
Fjölga störfum og auðga atvinnulífið (skjóta styrkari stoðum undir núverandi undirstoðir; sjávarútveg, álbræðslu, orkusölu og ferðamennsku)
Efling rannsókna og nýsköpunarstarfssemi

Annað
Er til aðstaða fyrir nýtt starfsfólk?
Er tími til að styðja við nýtt starfsfólk (kennarar og sérfræðingar)?
Úr hvaða stéttum er þörf á sérfræðingum? (viðskiptafræði/raungreinar)
Hvaðan koma nemendur? (Hvar er verið að segja upp starfsfólki)

Útskýringar
Sum verkefni er hægt að fara í strax önnur þurfa nánari skoðunar áður en lagt er af stað
Skoðun gæti falist í rannsókn t.d. nemendaverkefni
Þegar rætt er um sérfræðing að verkefni er átt við sérfræðing á viðkomandi sviði; fræðimann eða frumkvöðul (sem fengi styrk til að kanna forsendur fyrir verkefni).

Þakkir
Fjölmargir hafa komið að þessari vinnu en við viljum sérstaklega þakka Jóni Inga og Hildigunni Rut fyrir þeirra vinnuframlag.
Hreiðar, Hörður og Bjarni

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf