Háskólinn á Akureyri

Stutt lýsing:Markmið verkefnisins er að auka verðmæti sjávarfangs með því að þróa

Slógbót –bćtt nýting og aukiđ verđmćti úr slógi

Stutt lýsing:
Markmið verkefnisins er að auka verðmæti sjávarfangs með því að þróa aðferðir til að safna slógi hvort sem það verður til við slægingu í landi eða um borð í fiskiskipum, tryggja gæði þess þannig að aðskilja megi -þegar í land er komið- lifur, maga, garnir og önnur innyfli (t.d. hrogn og svil) og þannig fá verðmætara hráefni til frekari fullvinnslu á afurðum svo sem á ensímum og lýsi. Verkefninu er ætlað að þróa aðferðir til að safna slógi hvort sem það verður til við slægingu í landi eða um borð í fiskiskipum, tryggja gæði þess þannig að aðskilja megi -þegar í land er komið- lifur, maga, garnir og önnur innyfli (t.d. hrogn og svil) og þannig fá verðmætara hráefni til frekari fullvinnslu. Mikilvægur þáttur verkefnisins er að skilgreina og mæla gæði einstakra hluta slógsins út frá gæðakröfum væntanlegra kaupenda.

Aðilar sem þegar framleiða afurðir úr slógi (Slóg er: magi, skúflangar, þarmar, lifur, gallblaðra, milta, hrogn, svil) eða hlutum þess kvarta undan því að erfitt sé að fá hráefni til framleiðslunnar. Nefna má aðila sem framleiða lýsi úr lifur og ensím úr þörmum og skúflöngum. Miðað við 15% slóghlutfall má ætla má að það falli til um 30.000 tonn af slógi frá þorskveiðum, 10.000 -15.000 tonn frá ufsa og ýsu. Þá eru ótaldar aukaafurðir svo sem afskurður og roð og aukaafurðir frá karfa og öðrum tegundum. Af þessu magni er mest hirt af lifur og hrognum ( u.þ.b. 5 þ.tonn) annað fer í bræðslu eða er hent. Ýmsar ástæður eru gefnar þegar kannað er hvers vegna slóg er ekki hirt í meira mæli og það fer það dálítið eftir tegund veiðifæra hvort og hvaða möguleikar eru á að hirða og koma með að landi óskemmt slóg. Miðað við aflatölur 2002 (www.hagstofa.is ) var landað um 90.000 tonn að þorski sem aflað var með botnvörpu, 44.000 tonn með línu og annað eins með netum, u.þ.b. 20.000 tonn með handfærum og minna með öðrum veiðarfærum (samtals 213.000 tonn). Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu (töflur unnar af Magneu Jónsdóttur, feb. 2004) var árið 2002 landað um 50.000 tonnum af óslægðum þorski. Mest var landað af óslægðum fiski af línu- (21.037 tonn), færa- (16.151 tonn), neta (7.528 tonn) og dragnóta- (5.370 tonn) bátum. Nær allur afli sem veiðist í troll er landaður slægður. Því falla til um 7.500 tonn af þorskslógi "á landi" og 22.000 tonn "úti á sjó".

Samstarfsaðilar: Fiskmarkaðir og „Siglfirðingar"

Mannafli: Starfsmenn yrðu 3-4 í hlutastörfum.

Tími: Undirbúningur yrði 2-3 mánuðir en hægt ætti að vera að byrja 1.febrúar 2009. Um er að ræða nýráðningu í sem nemur 12 mmán.

Kostnaður: Launakostnaður í 12 mannmánuðir @ 250 per mmán eða um 3 mkr.

Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt viđ University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkađi sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viđskiptafrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf