Háskólinn á Akureyri

Stutt lýsing:Í verkefninu Þangbót, sem hefur verið rekið í nokkur ár, er verið að

Ţangbót

Stutt lýsing:
Í verkefninu Þangbót, sem hefur verið rekið í nokkur ár, er verið að þróa nýjar lífrænar markaðsvörur úr íslensku þangi. Notuð hafa verið ensím til að brjóta niður þang, þannig að úr varð þykkni sem unnið er áfram í átt að tveimur mismunandi vörum: annars vegar lífrænan bragðkjarna og hins vegar lífrænan áburð.
Markmið verkefnis er að þróa á áfram þessa framleiðsluferla sem þegar liggja fyrir úr verkefninu og þróa frekar þær frumgerðir sem fyrri liggja með samvinnu við væntanlega notendur. Unnið hefur verið með lífrænt þang og þara. Þess er vænst að verkefnið skili frumgerðum af lífrænum bragðkjörnum og áburði úr þangi og þara með skilgreindum eiginleikum og framleiðsluferli sem nýtist til að hefja framleiðslu inn á markað.
Þátttakendur verkefnisins hafa þegar öðlast talsverða þekkingu og reynslu á því að nota ensím til að framleiða þykkni úr þangi og öðlast betri þekkingu á þeim markaðskröfum sem gerðar eru til fyrirhugaðra vöruflokka sem vinna skal úr þykkninu. Gert er ráð fyrir að afrakstur verkefnisins verði frumgerð af vörum sem þróaðar hafa verið í samstarfi við notendur með tilliti til þarfa markaðarins. Gert er ráð fyrir að vörurnar geti skapað útflutningstekjur á bilinu 100 til 300 Mkr á næstu 5-10 árum.

Samstarfsaðilar: Þörungaverksmiðjan, SERO, MarinAgra, Pharmarctica

Mannafli: Hægt að bæta við amk 1 manni strax.

Tími: Verkefnið er í gangi. Um er að ræða nýráðningu í 12 mánuði amk frá og með 1 des. nk.

Kostnaður: Launakostnaður í 12 mannmánuðir @ 350 per mmán eða um 4,2 mkr. Annar kostnaður fellur á verkefnið.

Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf