Vaxtartækifæri með Háskólanum á Akureyri:
Þekkingarþorp og vísindagarður á Sólborgarsvæðinu
Markmið á að vera tvenns konar
- Til skemmri tíma að skapa farvegi fyrir fólk sem vill og/eða verður að skipta um starfsvettvang vegna hruns í efnahagskerfinu.
- Til lengri tíma að byggja upp grundvöll fyrir og umgjörð um markvissa fjárfestingu í sjálfbæru og framleiðslutengdu atvinnulífi sem býður upp á útflutning og launaumhverfi yfir meðallagi.
Gengið er útfrá eftirfarandi:
- Að það verði forgangsverkefni stjórnvalda og viðskiptalífs að beina umtalsverðum hluta af því lánsfé sem fæst til uppbyggingar eftir hrunið inn á vettvang nýsköpunar og sjálfbærs atvinnu- og efnahagslífs.
- Að miðað við reynslu nágrannaþjóða megi ganga útfrá því að þekkingarklasar og vísindagarðar í samstarfi við háskóla geti verið ein öflugasta nálgun til að virkja sköpunarkraft þar sem opinberir aðilar og viðskiptalíf leggja að mörkum.
- Að sá undirbúningur sem fyrir liggur í þróunarfélagi Háskólans á Akureyri - Þekkingarvörður ehf - geti verið nothæfur farvegur fyrir skipulögð skref til uppbyggingar.
(Sjá nánar t.d. http://www.bensi.is ) http://www.bensi.is/?m=page&f=viewPage&id=45
Á ofangreindum grunni:
- Auka hlutafé í Þekkingarvörðum ehf;
- Ríkið og sveitarfélögin - - komi með að lágmarki 50-80 milljónir á árinu 2008-2009
- Akureyrarbær leggur fram skilgreindan og samningsbundinn forgang að Sólborgarsvæðinu til 99 ára.
- Leitað verði til svæðisbundinna velvildaraðila um aukið hlutafé - 50-80 milljónir á árinu 2008-2009 (Byr-Sparisjóðir/KEA/SagaCapital/Samherji ofl.)
- Skilgreining á vísindagarðs-verkefninu við HA verði sett í hraðvinnslu með nokkrum forgangsatriðum;
- Frumkvöðlasetur komist í gagnið - með aðstöðu og aðgangi að stoðkerfi og þjónustu (til að taka við frumkvöðlum eða atvinnulausum hugmyndasmiðum).
- Gerður verði samningur við fyrirtæki á svæðinu um að bjóða frumkvöðlum aðgengi að aðstöðu, tækni og "fóstri"
- Fyrirtæki fái aðstoð til að nýta sér mögulegan stuðning frá Vinnumálastofnun til að launa fólk að hluta eða að fullu til tímabundinna starfa við nýsköpun eða þróunarstörf sem annars væru ekki unnin innan fyrirtækisins.
- Endurnýjaðar verði hugmyndir um kennslu í frumkvöðlafræðum og nýsköpun innan Viðskipta- og raunvísindadeildar HA.
- Endurmetnar forsendur fyrir kennslu og rannsóknum á sviði upplýsingatækni við HA og í tengslum við Frumkvöðlasetur
- Lagt verði upp með nánari útfærslu á skipulagi og meginlínum um Þekkingarþorp á Sólborgarsvæðinu og settir verði fjármunir í undirbúning og frumhönnun - sem getur tekið byggingarhugmynd að Borgum II yfir og sett á dagskrá.
- Endurnýja Tækifæri hf sem staðbundinn fjárfestingarsjóð - - með nýju hlutafé frá Nýsköpunarsjóði og Byggðastofnun (Byggðastofnun skili þeim 250-300 milljónum sem sala hlutafjár í Tækifæri skilaði á síðasta ári.) - um leið og sjóðnum eru sett framsækin og raunsæ markmið.
- RES verði bakkaður upp - - til að tryggja og festa starfsemina á Akureyri.
- Tryggð verði innritun á 5 brautir frá febrúar 2009.
- RES-samstarfsnetið fái sérstaka fjármögnun
- Leiðtogaskóli RES verði fjármagnaður með samstarfi við fjölþjóðleg fyrirtæki og komið af stað 2009
- Sumarskóli RES verði tvöfaldaður og útvíkkaður til EVRÓPU og Asíu og fleiri landa utan USA.
- Rannsóknarstofur RES verði styrktar með nýjum verkefnum og tækjum í samstarfi við atvinnulíf og Landbúnaðarháskóla Íslands
- JarðhitaHÁskóli SÞ verði boðinn velkominn sem samstarfseining fyrir RES
- Jarðvárskóli Sameinuðu þjóðanna verði tekinn á framkvæmdastig sem hluti af þróunaraðstoð Íslands - á árinu 2009
Benedikt Sigurðarson


