Háskólinn á Akureyri

Samstarfsaðilar: RHA og ýmsar stofnanir um land allt.Mannafli: Að verkefninu munu koma starfsfólk RHA

Upplýsingaskjóðan

Samstarfsaðilar: RHA og ýmsar stofnanir um land allt.

Mannafli: Að verkefninu munu koma starfsfólk RHA (sérfræðingar, aðstoðarfólk), atvinnulausir einstaklingar á svæðinu ásamt starfsfólki ýmissa stofnana.

Tími: Desember 2008 - desember 2010

Kostnaður: Fer eftir umfangi. Áætlaður kostnaður á ári 6 milljónir auk vinnulauna skráningarfólks en atvinnuleysisbætur þess munu koma að miklu leyti upp í þann kostnað.

Stutt lýsing: 
Í megindráttum snýst verkefnið um að koma ýmsum gagnlegum upplýsingum og skrám á tölvutækt form. Út um allt liggja ýmiskonar gögn sem safnað hefur verið saman í gegnum tíðina, t.d. á eyðublöðum, skrám og fundargerðum svo eitthvað sé nefnt. Einnig getur verið um að ræða gömul tímarit, bækur og bæklingar sem vert er að koma á tölvutækt form. Í einhverjum tilvikum liggja gögn undir skemmdum eða hverfa og gleymast. Á upplýsingaöld er mjög mikilvægt að varðveita söguna og alltaf vantar góð gögn í rannsóknir.

Verkefnið er á upphafspunkti og þarfnast smá útfærslu. RHA hefur yfir að ráða öflugum skanna og starfsfólki sem getur leiðbeint og útfært skráningu gagna. Leitað verður til stofnana, sveitarfélaga, sjóða og félaga eftir verkefnum til skráningar. Umsjón með verkefninu verður í höndum RHA en ráðnir verða einstaklingar til að skrásetja gögnin. Skráning gagna getur farið fram á mörgum stöðum, allt eftir eðli þeirra sem getur í einhverjum tilvikum þýtt sveigjanlegan vinnutíma og vinnu inni á heimilinu.

Vitað er að ýmsar stofnanir, félög og sjóðir liggja með gögn sem ætlunin hefur verið að koma á tölvutækt form en ekki gefist tími eða fjármagn til að framkvæma það. Nú er tækifærið að nota vinnuafl og þekkingu sem til staðar er og láta verða af því. Upplýsingarnar sem skráðar verða geta nýst á margvíslegan hátt. Vísindaheimurinn, fræðimenn og doktors- og mastersnemar geta nýtt upplýsingar af stöðluðum eyðublöðum í sínar rannsóknir án þess að þurfa að gera frumrannsóknir. Með þessari skráningu verða ýmsar upplýsingar mun aðgengilegri en áður og minni hætta á að upplýsingar glatist.

Hugmyndasmiður: Hjördís Sigursteinsdóttir, RHA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

„Lotukennsla, símat, toppkennarar og persónulegt umhverfi er það sem lögfræðikennslan við HA býður upp á.“

Vigdís Ósk Sveinsdóttir hdl. hjá Lögmönnum Höfðabakka
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf