Hugmyndin snýr að því að reisa útsýnisturn innan Akureyrar. Turninn verði reistur á einni þeirra fjölmörgu klettahæða (klettaborga) innan Akureyrar. Turninn verði bæði í senn listaverk og útsýnisturn.
Á Akureyri er ekkert ,,möst" fyrir ferðamenn. Það er ekkert eitt sem allir segja gestum sínum að þeir verði að skoða á Akureyri. Ef turninn er vel heppnaður með stórkostlegu útsýni yfir bæinn yrði hann algjört ,,möst" fyrir alla gesti bæjarins.
Staða verkefnisins: Á algjöru frum-hugmyndastigi
Hvað þarf að gera: Skoða hugsanlegar staðsetningar á Akureyri með tilliti til útsýnis og aðgengis (bílastæða og fl). Hvernig turn? Hæð og umfang. Af minnstu gerð (dæmi turninn við Hóladómkirkju) eða stærri með möguleikum á veitingasölu á topp. Kostnaðarmat og fleira. Best ef tillögur koma að útliti.
Fjármagns og mannaflaþörf: Aðallega mannafli, lítill kostnaður.
Fyrir hvaða fólk: Fólk með þekkingu eða áhuga á ferðamálum, listafólk, arkitekta, fólk innan byggingageirans.
Hugsanlegir samstarfsaðilar: Akureyrarbær, Markaðsskrifstofa ferðamála á Akureyri, Rannsóknamiðstöð ferðamála.
Jón Þorvaldur Heiðarsson
HA


