Háskólinn á Akureyri

Hinn gamli vegur yfir Vaðlaheiði er um þessar mundir einhverskonar ferðamannavegur, enginn fer þennan veg í öðrum

Ferđamannavegur yfir Vađlaheiđi

Hinn gamli vegur yfir Vaðlaheiði er um þessar mundir einhverskonar ferðamannavegur, enginn fer þennan veg í öðrum tilgangi en þó er vegurinn alls ekki skilgreindur né markaðssettur sem slíkur. Það þyrfti að fara í það verk að skoða hvað þurfi að gera til að vegurinn geti staðið undir nafni sem ferðamannavegur.

Staða verkefnisins: Á algjöru frumstigi.

Hvað þarf að gera: Verkefnið fælist í því að skoða hinn gamla veg yfir Vaðlaheiðina og finna leiðir til þess að gera hann að frábærum ferðamannavegi. Þar þarf að ýmsu að hyggja. Merkingar, aukið umferðaröryggi, útsýnisstaðir, upplýsingar og sögur á skiltum, hugsanlega þjónusta svo sem veitingasala. Hönnun á ýmsum sviðum. Jafnvel er möguleiki að gera ráð fyrir einhverjum listaverkum á leiðinni. Síðan þarf að huga að markaðssetningu innan héraðs sem gæti nýst í markaðssetningu á íslenskum ferðamannavegum erlendis.

Fjármagns og mannaflaþörf: Aðallega mannafli. Kostnaður felst aðallega í sérfræðingum sem leiða verkið.

Fyrir hvaða fólk: Fólk með þekkingu eða áhuga á ferðamálum, hönnuðir og arkitektar, sérstaklega landslagsarkitektar, fólk með þekkingu á gerð og viðhaldi vega. Fólk með þekkingu á markaðsstarfi. Jafnvel listamenn.

Hugsanlegir samstarfsaðilar: Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi, Vegagerðin á Norðaustursvæði, Rannsóknamiðstöð ferðamála, Atvinnuþróunarfélög í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.

Tími: Nokkrir mánuðir.

Jón Þorvaldur Heiðarsson
HA

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Alma Kristín Gísladóttir

„Ţađ kom aldrei neitt annađ til greina en ađ fara í HA. Námiđ er spennandi og opnar ýmsa möguleika til framtíđar. “

Alma Kristín Gísladóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf