Mannafli: 1-2 ný ársverk
Tími: 1 ár
Kostnaður: Ef gert er ráð fyrir 10 varmadælum þá gæti kostnaður numið um 5 milljónum. Sparnaður ríkis af hverri varmadælu í formi lægri niðurgreiðslna gæti numið 300 -500 þúsund á 10 árum. Sparnaður húseiganda gæti numið 50-100 þúsund krónum árlega.
Lýsing
Varmadælur geta sparað umtalsverða raforku til hitunar eða um allt að ¾.
Tillagan snýst um að setja upp varmadælur á nokkum stöðum þar sem raforkukostnaður til hitunar er óvenju hár. Settar yrðu upp loft/loft varmdælur sem eru frekar einfaldar í uppsetningu og rekstri.
Markmið
Að draga úr raforkukostnaði íbúa sem ekki búa við hitaveitu
Að draga úr kostnaði ríkis við niðurgeiðslu raforku til húshitunar
Að auk verðmæti húsa á þessum svæðum
Að auka lífsgæði íbúa á köldum svæðum
Að auka verkefnastöðu iðnaðarmanna og þjónustuaðila á svæðinu
Að auka orkunýtni með vistvænum hætti
Að kann almenna hagkvæmni varmdæla á köldum svæðum landsins
Að meta rekstur varmadæla við íslenskar aðstæður
Tímaáætlun
Óskað yrði eftir þátttakendum fyrri hluta árs 2008 og þeir metnir eftir gerð húsa og orkunotkunar. Á haustmánuðum er mögulegt að hefja uppsetningar varmdæla
Stöðugildi
Ekkert fast stöðugildi mun skapast beint við verkefnið en talsverðu fjöldi vinnustunda mun fylgja uppsetningu, viðhaldi og eftirliti með varmadælunum. Verkefnið myndi efla verkefnastöðu ýmissa iðnaðarmanna á svæðinu. Lægri rekstarkostnaður þátttakenda ætti að bæta almenna samkeppnistöðu þeirra.
Hugmyndasmiður: Sigurður Friðleifsson, Orkusetur


