Aðalfundur 2008
Aðalfundur fyrir árið 2008 var haldinn 24. febrúar 2009 á lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri. Eva Hrund Einarsdóttir, fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnar og fór þar yfir verkefni Góðvina á árinu. Þar bar hæst undirbúning fyrir brautskráningarveislu og endurfundi sem fram fóru í húsakynnum háskólans að kvöldi brautskráningardags og þótti takast með eindæmum vel. Einnig var unnið að gerð nýrrar heimasíðu fyrir Góðvini sem verður tekin í notkun á árinu 2009.
Að lokinni yfirferð á skýrslu stjórnar fór Rúnar Þór Sigursteinsson, gjaldkeri yfir reikninga samtakana. Engar athugasemdir voru gerðar við reikninga en þá má sjá hér að neðan í skjali sem nefnist Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn.
Kosið var í nýja stjórn en Eva Hrund gaf ekki áfram kost á sér sem formaður og Rúnar gaf ekki kost á sér sem gjaldkeri. Í þeirra stað gáfu kost á sér Þuríður Jónasardóttir í stöðu formanns og Baldvin Esra Einarsson í stöðu gjaldkera. Nánar má lesa um nýju stjórnina, varastjórn og fulltrúaráð í skjali hér að neðan.
Utan venjulegra aðalfundarstarfa og breytinga á samþykktum flutti Helga Hlín Hákonardóttir hdl., framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Saga Capital erindi um ábyrgð stjórna og stjórnarmanna hlutafélaga í kjölfar bankahrunsins og vanda fyrirtækja sem hafa farið mikinn á liðnum árum.
Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn
Fundargerð aðalfundar 2008
Fréttabréf Góðvina 2008
Aðalfundur 2007
Aðalfundur fyrir árið 2007 var haldinn 22. janúar 2008. Í skýrslu stjórnar sem Jóna Jónsdóttir, fráfarandi formaður kynnti kom fram, að á árinu 2007 var unnið að mörgum góðum verkefnum. Unnið var að öflun félaga í fyrirtækjatal, veitt voru heiðursverðlaun við brautskráningu, haldin var brautskráningarveisla og endurfundir, HA var gefinn flatskjár í tilefni af 20 ára afmæli skólans og í lok ársins var gefið út fréttabréf sem sent var til allra félagsmanna og afmælisárganga.
Að lokinni yfirferð á skýrslu stjórnar fór Rúnar Þór Sigursteinsson, gjaldkeri yfir reikninga samtakanna. Tap upp á rúmlega 282.000 kr. var á rekstrinum og helgast það aðallega af því að brautskráningarveisla og endurfundir voru með veglegra móti, auk þess sem ákveðið var að fresta útsendingu á greiðsluseðlum til félagsmanna fram yfir áramótin. Verða þeir sendir út í febrúar og á fundinum var ákveðið að halda félagsgjaldi óbreyttu eða 2.500 kr.
Á fundinum var tilkynnt að Rúnar Þór Sigursteinsson sem verið hefur gjaldkeri frá upphafi hefur ákveðið að hætta í stjórn. Einnig mun Jóna Jónsdóttir sem verið hefur formaður frá árinu 2004 hætta til að gerast starfsmaður samtakanna. Þeim eru þökkuð góð störf í þágu HA og Góðvina, en sæti þeirra taka Selma Sigurjónsdóttir (viðskiptafræðingur) og Valdimar Víðisson (skólastjóri).
Utan venjulegra aðalfundastarfa kynnti Ágúst Þór Árnason meistaranám í heimskautarétti (Polar Law) sem boðið verður upp á við HA frá haustinu 2008. Áhugasamir geta kynnt sér námið á www.polarlaw.is. Í lok fundar nutu gestir veitinga frá Lostæti, en þeir eru bakhjarlar Góðvina ásamt Sparisjóði Norðlendinga, Ásprent, Stefnu og Sjallanum.
Ræða formanns og reikningar
Fréttabréf Góðvina 2007 - síða 1
Fréttabréf Góðvina 2007 - síða 2
Aðalfundur 2006
Aðalfundur Góðvina var haldinn 14. nóvember 2006. Á fundinum fór Eva Hrund Einarsdóttir, varaformaður yfir starfsemi liðins árs og reikninga í fjarveru formanns. Kosnir voru fulltrúar í stjórn, varastjórn og fulltrúaráð auk þess sem skoðunarmenn reikninga voru tilnefndir. Samþykkt var breytingartillaga Baldvins Esra Einarssonar við 5. gr. samþykkta Góðvina og eftir breytinguna er formfest sú hefð að formaður FSHA sitji í stjórn Góðvina fyrir hönd nemenda. Ákveðið var að halda árgjaldi óbreyttu eða 2500 krónur.
Utan venjulegra aðalfundastarfa kynnti Eyjólfur Guðmundsson, deildarforseti viðskipta- og raunvísindadeildar áform deildarinnar um að bjóða upp á framhaldsnám á sviði viðskiptafræða frá og með hausti 2007. Námið verður að hluta til fjármagnað af fyrirtækjum og fram kom í ræðu varaformanns Góðvina að Sparisjóður Norðlendinga hefur þegar samþykkt að vera einn af kostunaraðilunum.
Í lok fundar nutu gestir veitinga frá Lostæti, en þeir eru bakhjarlar Góðvina ásamt Sparisjóði Norðlendinga, Ásprent, Stefnu og Sjallanum.
Ræða formanns
Reikningar 2005
Skýrsla stjórnar (bls. 1)
Skýrsla stjórnar (bls. 2)


