Háskólinn á Akureyri var stofnaður árið 1987 og markaði tilkoma hans þáttaskil í
háskólamenntun á Íslandi. Háskólinn hefur verið í stöðugri uppbyggingu og þróun í nærri
aldarfjórðung og stendur því á sterkum grunni. Hann veitir nemendum sínum og kennurum framsækið en stöðugt umhverfi. Stúdentar
og starfsmenn eru virkir þátttakendur í daglegum rekstri skólans. Fulltrúar stúdenta og starfsmanna sitja í nær öllum ráðum og
nefndum háskólans og yfirstjórn skólans er í reglubundnum tengslum við samstök stúdenta og starfsmanna varðandi hin ýmsu
hagsmunamál þeirra .
Háskólinn á Akureyri og starfsfólk hans telur það hlutverk sitt að skapa heim þar sem nemendum líður vel í persónulegu umhverfi sem örvar þá til skapandi verka. Námið fer yfirleitt fram í frekar litlum hópum þar sem hægt er að halda uppi góðri þjónustu við hvern og einn nemanda. Áhersla er lögð á að nemendur hafi góðan aðgang að kennurum sínum þannig að þeir í sameiningu geti auðveldað nám nemandans og leyst vandamál sem upp kunna að koma. Viðhorf brautskráðra nemenda er mikilvægur vitnisburður um gæði í starfsemi háskóla. Brautskráðir nemendur Háskólans á Akureyri bera honum gott vitni og eru ánægðir með það nám og reynslu sem þeir hafa fengið.
Akureyri er háskólabær þar sem stúdentar gegna ákveðnu hlutverki í bæjarlífinu. Þar eru allar vegalengdir stuttar og þjónusta því alltaf nálæg. Háskólinn á Akureyri er staðsettur á glæsilegu háskólasvæði í hjarta Akureyrar. Frítt er í strætisvagna, íþróttalíf er fjörugt og íþróttaaðstaða góð. Aðstaða til vetraríþrótta er eins og best verður á kosið með skautahöll og skíðasvæði í nokkurra mínútna akstursfjarlægð. Menningarlíf er blómlegt og þá sérstaklega hvað verðar leiklist, tónleika og aðra listsköpun. Stúdentagarðar eru á þrem stöðum á Akureyri en einnig leigja stúdentar sér húsnæði víðsvegar um bæinn.
Val á háskóla er mikilvæg ákvörðun á lífsferli stúdenta og Háskólinn á Akureyri veitir nemendum sínum einstakt tækifæri til að taka virkan þátt í nýsköpun þekkingar á fjölmörgum sviðum.


