Gæðaráð Háskólans á Akureyri
Við
háskólann starfar gæðaráð en þar eiga sæti rektor í forsæti, forsetar fræðasviða, framkvæmdastjóri,
forstöðumaður kennslusviðs, gæðastjóri, tveir fulltrúar nemenda og tveir fulltrúar starfsmanna. Gæðaráðið er
kallað saman eigi sjaldnar en annan hvern mánuð í tengslum við fundi framkvæmdastjórnar.
Hlutverk gæðaráðs er að:
- bera ábyrgð á framkvæmd gæðakerfis háskólans
- tryggja að háskólinn standist ávallt þær ytri kröfur sem gerðar eru til gæða í starfi hans
- vekja áhuga á gæðamálum innan háskólans
- vera vettvangur umfjöllunar og ákvarðanatöku um gæðamál háskólans
- stuðla að umbótum og þróun á kennslu og námsmati innan háskólans
- samþykkja, hafa eftirlit með og tryggja reglulega endurskoðun á námsbrautum og prófgráðum
- vaka yfir gæðum rannsókna innan háskólans
- safna saman, meta og bregðast við þeim upplýsingum um starfsemi háskólans sem lúta að gæðum
- taka afstöðu til mikilvægra breytinga á starfsemi háskólans sem kunna að hafa áhrif á gæði í starfsemi hans
- fjalla um undirbúning og framkvæmd sjálfsmats og ytra mats á háskólanum og tryggja eftirfylgni
Gæðaráð veturinn 2011-2012 skipa:
| Árún Kr. Sigurðardóttir | forseti heilbrigðisvísindasviðs | |
| Elín Díanna Gunnarsdóttir | fulltrúi akademískra starfsmanna | skipun til 1. júlí 2013 |
| Heiða Kristín Jónsdóttir | fulltrúi starfsfólks stjórnsýslu og stoðþjónustu | skipun til 1. júlí 2013 |
| Hans Kristján Guðmundsson | forseti viðskipta- og raunvísindasviðs | |
| Kolbrún Eva Ríkharðsdóttir | fulltrúi nemenda | |
| Ólafur Halldórsson | framkvæmdastjóri | |
| Sigrún Magnúsdóttir | gæðastjóri | |
| Sigurður Kristinsson | forseti hug- og félagsvísindasviðs | |
| Steinunn Aðalbjarnardóttir | forstöðumaður kennslusviðs | |
| Stefán B. Sigurðsson | rektor | |
| Þorbjörg Ólafsdóttir | fulltrúi nemenda |
Varafulltrúar:
| Hafrún Dögg Hilmarsdóttir | fulltrúi nemenda | |
| Ingveldur Tryggvadóttir | fulltrúi starfsfólks stjórnsýslu og stoðþjónustu | skipun til 1. júlí 2013 |
| Matthildur Birgisdóttir | fulltrúi nemenda | |
| Sólveig Ása Árnadóttir | fulltrúi akademískra starfsmanna | skipun til 1. júlí 2013 |
Erindi til gæðaráðs skulu berast til Sigrúnar Magnúsdóttur gæðastjóra (sigrun@unak.is).


