Leiðbeiningar vegna flokkunar sorps við HAVið Háskólann á Akureyri er starfað samkvæmt sérstakri umhverfisstefnu og frá og með 1. apríl 2009 hefur allt sorp verið flokkað innan stofnunarinnar.
Kennslustofur og fundarherbergi
Í hverri kennslustofu og í fundarherbergjum eru 3 rusladallar. Flokkunin skal vera sem hér segir:
1. Fernur
2. Dósir, plastílát, flöskur
3. Annað sorp sem ekki er talið upp að ofan
Starfsfólk og nemendur eru vinsamlega beðin um að losa pappír í næsta merkta ílát fyrir pappír, þau má finna m.a. finna við prentara og ljósritunarvélar. Umsjónarfólk sér um að losa annað flokkað sorp.
Skrifstofur
Í hverri skrifstofu er ein ruslafata og pappabox undir allan pappír nema fyrir bylgjupappír og handþurrkur.
Annað rusl skal flokka sem hér segir:
1. Matarúrgang skal setja í sérmerktar fötur sem staðsettar eru í mötuneyti og/eða eldhúskrókum og í sumum tilfellum á enda ganga
2. Skilja má bylgjupappa eftir við rusladalla
3. Rafhlöður skal setja í sérmerktar fötur sem staðsettar eru við afgreiðslur
Umsjónarfólk sér um að tæma ruslafötuna. Starfsfólk er vinsamlega beðið um að losa pappír í næsta merkta ílát fyrir pappír.
Aðrar vistarverur, gangar o.fl.
Á göngum eru nokkur ílát fyrir rusl. Þau eru misstór og vel merkt svo enginn vafi leiki um hvað skal setja í hvert ílát.
Pappír skal setja í pappabox sem staðsett eru við allar ljósritunarvélar, í kennslustofum, fundarherbergjum og við alla prentara í byggingum HA. Hér er átt við allan pappír annan en bylgjupappír og þann pappír er til fellur í mötuneyti og á snyrtingum.
Kynning á sorphirðu


