Háskólinn á Akureyri

Háskólafundur er samráðsvettvangur fulltrúa yfirstjórnar háskólans, fræðasviða hans,

Háskólafundir

Háskólafundir
Háskólafundur er samráðsvettvangur fulltrúa yfirstjórnar háskólans, fræðasviða
hans, háskólaskrifstofu auk fulltrúa nemenda og kennara. Skal fundurinn vera vettvangur fyrir umræðu um fagleg málefni innan skólans sem og varðandi akademíska stefnumótun. Háskólafundur mótar sameiginlega vísinda- og menntastefnu háskólans og leitast við að efla og styrkja þróun hans.

Á háskólaráðsfundi eiga eftirfarandi fulltrúar rétt til setu:
a) Rektor, forsetar skóla séu þeir ráðnir, forsetar fræðasviða, framkvæmdastjóri, gæðastjóri og forstöðumenn sviða háskólaskrifstofu, en til vara eru staðgenglar þeirra.
b) Úr hópi fastra kennara tilnefna fræðasvið skólans hver um sig fimm fulltrúa, talsmaður Félags prófessora við ríkisháskóla sem starfa við HA tilnefnir einn, stjórn Félags háskólakennara á Akureyri tilnefnir einn, starfsmenn háskólaskrifstofu tilnefna tvo og skulu þeir allir, auk varamanna, tilnefndir eftir kosningu á meðal starfsmanna, á viðkomandi fræðasviði, á háskólaskrifstofu, eða á meðal viðkomandi félagsmanna, til tveggja ára í senn.
c) Nemendur háskólans tilnefna eftir kosningu á vettvangi FSHA sex fulltrúa, og jafn marga til vara, til setu á háskólafundi til eins árs í senn, en háskólaráð getur þó ákveðið hverju sinni að þeir fulltrúar verði ýmist fleiri eða færri m.t.t. áskilnaðar laga þar um.
d) Fulltrúar í háskólaráði hafa sem slíkir seturétt á háskólafundi en ekki atkvæðisrétt.

Sjá Reglur um háskólafund Háskólans á Akureyri nr. 389/2009

5. háskólafundur 29. október 2010
4. háskólafundur 26. maí 2009
3. háskólafundur 25. mars 2009
2. háskólafundur 19. september 2008
1. háskólafundur 2. apríl 2008

 

 

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Jónsdóttir

„Hjúkrunarfrćđi viđ HA er fjölbreytt og líflegt nám.“

Jóhanna Jónsdóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf