Háskólinn á Akureyri

Háskólaráð fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans, sinnir

Háskólaráđ

HáskólaráðHáskólaráð fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans, sinnir yfirumsjón málefna er varða háskólann almennt og markar honum heildarstefnu. Þá stuðlar háskólaráð að, skipuleggur og hefur umsjón með samvinnu sviða og samskiptum við aðila utan háskólans, þar með talið samstarf við aðra háskóla og rannsóknastofnanir. Háskólaráð hefur úrskurðarvald í málefnum háskólans eftir því sem lög mæla fyrir um og nánar er ákveðið í reglugerð.

Háskólaráð 2010 - 2012 er þannig skipað:
Stefán B. Sigurðsson, rektor, formaður
Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra, fulltrúi menntamálaráðherra
Birna María Svanbjörnsdóttir lektor, fulltrúi háskólasamfélagsins
Hjörleifur Einarsson prófessor, fulltrúi háskólasamfélagsins
Sveinn Arnarsson nemi
Páll Skúlason prófessor, fulltrúi háskólaráðs
Svanfríður I. Jónasdóttir bæjarstjóri, fulltrúi háskólaráðs

Til vara:
Hallur Gunnarsson tölvunarfr., fulltrúi menntamálaráðherra
Óskar Þór Vilhjálmsson tæknimaður, fulltrúi háskólasamfélagsins
Hermann Óskarsson dósent, fulltrúi háskólasamfélagsins
Hafdís Erna Ásbjarnardóttir nemi
Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri, fulltrúi háskólaráðs.

Erindi til háskólaráðs skulu berast ritara rektors a.m.k. viku fyrir háskólaráðsfund. Háskólaráðsfundir eru auglýstir í viðburðadagatali hér á vef háskólans.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Bergvin Fannar Gunnarsson

„Ég valdi Háskólann á Akureyri ađ miklu leyti vegna stađsetningar skólans.“

Bergvin Fannar Gunnarsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf