Forseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri
Við Háskólann á Akureyri er laus til umsóknar staða forseta viðskipta- og raunvísindasviðs.
Við Háskólann á Akureyri er laus til umsóknar staða forseta viðskipta- og raunvísindasviðs.Staða forseta fræðasviðs er fullt starf og felur meðal annars í sér yfirumsjón með allri starfsemi fræðasviðsins, svo sem stjórnun, kennslu og rannsóknum. Næsti yfirmaður forseta fræðasviðs er rektor háskólans. Til greina kemur að forseti fræðasviðs komi að kennslu og rannsóknum innan fræðasviðsins sem hluta af starfi sínu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Doktorspróf er skilyrði og æskilegast að prófið sé á vettvangi
fræða sem kennd eru á viðkomandi fræðasviði eða tengjast viðfangsefnum þess
• Reynsla af rekstri og stjórnun
• Hæfileiki til að móta og miðla framtíðarsýn
• Reynsla af starfi innan háskóla er æskileg
• Reynsla af störfum tengdum viðfangsefnum á fræðasviðinu er æskileg
• Krafist er góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum.
Við mat á umsóknum verður tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir viðskipta- og raunvísindasviðs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2012.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2012. Ekki er notað staðlað umsóknareyðu- blað. Umsóknir og fylgigögn skal senda
skrifstofu rektors, Háskólanum á Akureyri, Sólborg, Norðurslóð 2, 600 Akureyri. Einnig skal senda umsóknina og fylgigögn á rafrænu
formi, eftir því sem unnt er, á netfangið ingveldur@unak.is, eða vísa til þess hvar þau eru
aðgengileg á rafrænu formi.
Helstu fylgigögn með umsókn eru: yfirlit yfir nám og störf, prófskírteini, umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir
því sem við á, ritaskrá, skýrsla um vísindastörf og þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjendur telja vera
sín bestu verk, allt að þremur ritum. Ef umsækjandi er meðhöfundur að innsendu ritverki skal hann gera grein fyrir sínu framlagi til verksins.
Ófullnægjandi umsóknir verða ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Dómnefnd metur hæfi umsækjenda með sama hætti og hæfi umsækjenda um stöðu háskólakennara er metið, skv. 16. gr. laga um opinbera
háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingu, og 15. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009. Umsækjendur fá tækifæri
til að gera athugasemdir við dómnefndarálit. Rektor ræður forseta fræðasviðs til tveggja ára að fenginni umsögn viðskipta- og
raunvísindasviðs og að höfðu samráði við háskólaráð.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra. Upplýsingar um viðskipta- og raunvísindasvið háskólans er að finna á vef háskólans hér. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán B. Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri, s. 460 8007, netfang rektor@unak.is.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.


