Háskólinn á Akureyri á marga velunnara sem hafa gefið honum ýmsar góðar gjafir. Hér á eftir fylgir yfirlit yfir þær helstu, en þess ber að geta að listinn er engan veginn tæmandi.
Íslandsklukkan var vígð á háskólasvæðinu þann 29. ágúst árið 2000. Um er að ræða útilistaverk eftir Kristinn E. Hrafnsson og gjöf bæjarins til bæjarbúa á kristnihátíðarafmælisári til minningar um landafundi í vesturheimi. Þann 1. desember 2001 afhenti Kristján Þór Júlíusson, þáverandi bæjarstjóri Akureyrarbæjar svo Háskólanum á Akureyri Íslandsklukkuna til afnota.
Íslandsklukkan er steypt úr bronsi. Hún er 5.765 kg að þyngd og er fyrirmynd hennar fengin úr Hóladómkirkju. Tónn klukkunnar er lægsta G. Efst á klukkunni er áletrun með 4383 tölustöfum sem er upptalning á öllum ártölum Íslandssögunnar eða frá 874 til ársins 2000. Undirstöður klukkunnar eru steyptir veggir sem lagðir eru steinflísum úr líparíti. Yfirskrift listaverksins er; Stórbrotnar furður og raunsannir atburðir sem skírskotar til sögu þjóðarinnar. Þessi setning er fengin frá Einari Má Guðmundssyni úr verki hans „Launsynir orðanna.“ Á klukkunni er einnig áletrunin: „Íslandsklukka - Þetta verk var gert til minningar um 1000 ára kristnitökuafmæli og landafundi í vesturheimi og sögu þjóðarinnar í stóru og smáu. 1. desember ár hvert verða slegin saman saga þjóðarinnar og hljómur samtímans.“
Íslandsklukkunni er sem áður sagði hringt 1. desember árlega. Henni er hringt einu sinni fyrir hvert ár umfram árið 2000 og það er jafnan einn af heldri borgurum í mennta- og menningarstarfi á Akureyri sem fær þann heiður að hringja henni. Hringing Íslandsklukkunnar er hluti af hátíðardagskrá sem fram fer þennan dag, en þá koma nemendur og starfsfólk háskólans saman ásamt starfsmönnum Akureyrarbæjar og öðrum bæjarbúum til að fagna fullveldinu. Hjá mörgum fjölskyldum bæjarins markar fullveldishátíðin upphaf jólaundirbúningsins.

Steinasafn
Árið 1997 (22. desember) var Háskólanum á Akureyri ánafnað veglegt steinasafn Ágústar Jónssonar. Hefur steinasafnið verið varðveitt óskráð í kjallara bókasafnsins utan nokkurra steina sem eru til sýnis í kennsluálmu skólans.
Þegar ný kennsluálma var byggð við Sólborg árið 2000 var steinasafninu ætlað pláss í suðurenda byggingarinnar og er fyrirhugað að setja safnið þar upp á næstunni.
Steinasafnið hefur að hluta til verið notað við kennslu í auðlindadeild en með því að koma því í aðgengilegt horf er hægt að nýta það enn betur og gera það aðgengilegt bæði starfsfólki og nemendum skólans svo og öðrum gestum.

Some Thames eftir Roni Horn
Árið 2000 gaf bandaríski listamaðurinn Roni Horn Háskólanum á Akureyri 80 ljósmyndir af ánni Thames sem teknar voru í hinum ýmsu veðrabrigðum. Myndirnar prýða veggi húsnæðis háskólans á Sólborg.
Jörðin Végeirsstaðir í Fnjóskadal
Þann 19. ágúst 2005 afhentu systkinin Arnór, Geirfinnur, Guðrún, Inga Dagmar og Jón Karlsbörn Háskólanum á Akureyri alla eignarhluta sína í jörðinni Végeirsstöðum í Fnjóskadal og er jörðin þar með nánast öll í eigu háskólans. Að auki afsöluðu Arnór og Geirfinnur sér til háskólans þremur sumarhúsum, einu bænahúsi og fleiri eignum á Végeirsstöðum. Jafnframt hefur Geirfinnur afhent Végeirsstaðasjóði 10 milljónir króna sem nýta skal til uppbyggingar á Végeirsstöðum.



