Háskólinn á Akureyri

        Um merkiðMerkið er endurspeglar stílhreinar línur í húsum háskólans og

Merki háskólans

Merki Háskólans á Akureyri

 

 

 

 

Um merkið
Merkið er endurspeglar stílhreinar línur í húsum háskólans og Íslandsklukkunni. Þannig er það í senn traust og framsækið. Það er auðveldlega hægt að lesa upphafsstafina HA út úr því og jafnvel UA. Þeir sem hafa fjörugt ímyndunarafl geta séð karl og konu út úr því og þar kemur jafnréttið til skjalanna. Í því eru þekkt tákn úr raunvísindum og leturgerðin er af húmanískum toga. Þannig vísar það til menntunar og er um leið alþjóðlegt.

Hér er að finna notkunarleiðbeiningar um merkið. Hægt er að nálgast útgáfur af merkinu fyrir word, excel, power point o.fl. með því að smella á krækjurnar að neðan, fara svo með bendilinn yfir myndina sem kemur upp, hægrismella og velja save picture as. Þegar búið er að vista myndina er farið í skjalið sem á að setja hana í, valið insert - picture - from file, myndin fundin og sett inn í skjalið. Myndina má svo minnka eða stækka með því að draga í hornin.

íslenskt í lit  íslenskt (top) í lit  enskt í lit 
íslenskt svart    íslenskt (top) svart    enskt svart   
íslenskt hvítt* íslenskt (top) hvítt* enskt hvítt*

* athugið að merkið er hvítt á hvítum grunni og því ekki sýnilegt fyrr en búið er að setja það á litaðan bakgrunn. 

Þeir sem þurfa að fá merkið sent á vektoraformi (eps ending m.a. fyrir Illustrator) geta haft samband við markaðs- og kynningarsvið í síma 460 8009 eða netfang dagmar@unak.is.


Samkeppni um nýtt merki árið 2007
Í febrúar árið 2007 ákvað háskólaráð að efna til samkeppni um nýtt merki fyrir Háskólann á Akureyri í tilefni af 20 ára afmæli skólans. Ákveðið var að merkið þyrfti að vera klassískt og endurspegla stefnu og starfsemi Háskólans á Akureyri. Lögð var áhersla á að það hefði skírskotun til gilda skólans sem eru traust, frelsi, framsækni og jafnrétti. Það átti að vera stílhreint og nútímalegt í samræmi við hús háskólans og hafa tilvísun til æðri menntunar og alþjóðleika.

Ákveðið var að fara eftir reglum FÍT um lokaða samkeppni. Formaður dómnefndar var Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og með honum störfuðu Halldóra Ísleifsdóttir fagstjóri í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og Sigurður Halldórsson arkítekt hjá Glámu Kím.

Þrír grafískir hönnuðir sem hafa reynslu af gerð firmamerkja voru valdir og skiluðu þeir allir inn vönduðum og áhugaverðum tillögum. Dómnefndin var einróma um að merki eftir Atla Hilmarsson væri best eða eins og fram kom í rökstuðningi „Merkið vísar í innviði og andlegt atgervi. Það ber með sér dirfsku og þor. Það vísar í staðhætti. Það er laust við tilgerð og er ákaflega einfalt og beinskeytt í notkun." Háskólaráð ákvað í kjölfarið að það yrði nýtt merki fyrir Háskólann á Akureyri.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Björg Jónína Gunnarsdóttir

„Bćđi námiđ og umhverfiđ hafa ţroskađ mig sem einstakling. Ég er farin ađ setja upp „iđjugleraugun“ og horfi í gegnum ţau međ ađra sýn á heiminn. “

Björg Jónína Gunnarsdóttir iđjuţjálfi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf