Háskólinn á Akureyri

Hlutverk skjalasafns Háskólans á Akureyri er að safna og varðveita skjöl og aðrar heimildir Háskólans

Skjalasafn

Háskólinn á AkureyriHlutverk skjalasafns Háskólans á Akureyri er að safna og varðveita skjöl og aðrar heimildir Háskólans til notkunar fyrir Háskólann, stjórnvöld, stofnanir og einstaklinga. Er það í samræmi við Lög um Þjóðskjalasafn Íslands en samkvæmt þeim eru allar opinberar stofnanir afhendingarskyldar til Þjóðskjalasafns Íslands.

Skjalastjórn er kerfisbundin stjórn á skjölum frá því að þau verða til í stofnun eða fyrirtæki, eða berast að, og þar til þeim er eytt eða sett í varanlega geymslu. Skjalastjórn felur í sér flokkun og merkingu skjala, dreifingu, vistun, endurheimt, stjórn á framleiðslu og notkun eyðublaða og skýrslna og gerð skjalastjórnaráætlana.

Skjöl eru skilgreind skv. lögum um Þjóðskjalasafn sem hvers konar gögn, jafnt rituð sem á öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi á vegum stofnunar eða einstaklings.



Blar Gulur Hvitur
A A A
Gústaf Línberg Kristjánsson

„Sjávarútvegsfrćđi er ţverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi.“

Gústaf Línberg Kristjánsson nemandi í sjávarútvegsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf