Stjórn háskólans er falin háskólaráði og rektor, en til yfirstjórnar háskólans
teljast auk þess framkvæmdastjóri og forsetar fræðasviða. Vissar ákvarðanir af hálfu yfirstjórnar kunna eftir atvikum að
verða teknar á vettvangi framkvæmdastjórnar eða háskólafundar.
Háskólaráð fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans nema mælt sé á annan veg í lögum, markar heildarstefnu í kennslu og rannsóknum, mótar skipulag, fer með almennt eftirlit og ber ábyrgð á að háskólinn starfi til samræmis við gildandi lög og reglur.
Háskólaráð
Fundargerðir
háskólaráðs
Framkvæmdastjórn


