Í þessu námi munu nemendur hafa öðlast dýpri þekkingu og sérhæfingu á sviði stjórnunar innan
heilbrigðisþjónustunnar. Þessi þekking mun nýtast einstaklingum vel í umhverfi sem þeir þurfa að glíma
við í rekstri deilda, fyrirtækja og stofnana í dag.
Markmið námsins er að þeir sem útskrifast úr náminu verði gagnrýnir greinendur, ígrundandi fagmenn, breytingarliðar og
víðsýnir og skapandi leiðtogar. Þetta eru þeir námskrárþræðir sem verða rauðu þræðirnir í
uppbyggingu og innihaldi námskeiða og verður leiðarljós í kennsluháttum og námsmati. Þá verður í öllum
námskeiðum lögð áhersla á mikilvægi rannsókna.
| Hver og einn nemandi setur sér markmið innan framhaldsnámsins þar sem rauði þráðurinn er stjórnun innan
heilbrigðisþjónustunnar. Sigríður Halldórsdóttir (sigridu@unak.is) og Sigrún Gunnarsdóttir, eru
til staðar til að aðstoða nemendur við að setja sér þau markmið og velja síðan saman þau námsskeið sem skila viðkomandi að
settu marki. Sjá handbók um námsleiðina |
|
„Við Háskólann á Akureyri er mjög áhugaverður kostur í boði fyrir stjórnendur heilbrigðisstofnana. Námið er hagnýtt frá fyrsta degi á sama tíma og faglegar kröfur eru miklar. “ Þröstur Óskarsson |
![]() |



