Deildafundur (sviðsfundur)
Deildafundur er haldinn tvisvar á misseri og fer með æðsta vald í málefnum sviðsins. Á
deildafundi eiga sæti allir fastráðnir starfsmenn deildarinnar, fulltrúar stundakennara og fulltrúar nemenda.
Deildaráð
Deildaráð kemur saman einu í mánuði. Það fer meðal annars með æðsta vald sviðsins á
milli deildafunda og málefni einstakra nemenda. Í deildaráði sitja forseti fræðasviðs, formenn deilda, fulltrúar kennara deilda og fulltrúi
nemenda.
Deildarfundir
Deildarfundir eru að jafnaði haldnir einu í mánuði. Á þeim er fjallað um dagleg málefni viðkomandi deildar. Á deildarfundum eiga
sæti formenn og kennarar viðkomandi deildar.
Matsnefndir
Matsnefnd í grunnnámi eru, matsnefnd fyrir hjúkrunarfræði og matsnefnd fyrir iðjuþjálfunarfræði
og matsnefnd fyrir framhaldsnám í heilbrigðisvísindum. Nefndirnar fjalla um beiðnir nemenda um mat á námi, sbr.vinnureglur matsnefndar fyrir grunnám og vinnureglur fyrir framhaldsnám.
Erindi til stjórnsýslu heilbrigðisvísindasviðs
Erindi til stjórnsýslueininga sviðsins skulu berast viku fyrir
fund á skrifstofu heilbrigðsvísidnasviðs, dagsett og undirrituð.
Stjórnskipulag heilbrigðisvísindasviðs - Reglur nr. 610/2009


