Nemendur í meistaranámi vinna 60 eininga rannsóknarverkefni. Margvísleg meistaraverkefni hafa verið unnin á undanförnum árum, til dæmis:
| Hólmfríður Margrét Bjarnadóttir | |
| hjúkrunarfræðingur, M.S. í heilbrigðisvísindum 2009 | |
|
Heiti verkefnis: |
Áhrif svæðameðferðar á þunglyndi og kvíða: Að meðhöndla hið stóra í gegnum hið smáa. |
| „Námið veitti mér tækifæri til að vinna að nýsköpun á sviði óhefðbundinna meðferða á
heilbrigðissviði. Slík vinna er mikilvæg, eflir víðsýni og er grundvöllur þess að viska vísindanna nýtist
fræðimönnum til að vinna að sameiginlegum markmiðum. Auk þess skapar hún ný tækifæri í framtíðinni.” |
|
| Unnur Árnadóttir | |
| sjúkraþjálfari, M.S. í heilbrigðisvísindum 2009 | |
|
Heiti verkefnis: |
Hvað finnst foreldrum barna með hreyfihömlun um þjónustu sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og talmeinafræðinga? Mat á fjölskyldumiðaðri þjónustu. |
| „Skipulagning meistaranámsins er góð í alla staði og hentar mjög vel með starfi. Góð námskeið sem fjalla um
fötlun og endurhæfingu og auðvelt að sníða námið að sínum áhugaefnum. Frábært nám sem hentar breiðum hópi
heilbrigðisstarfsfólks.” |
|
| Guðrún Elín Benónýsdóttir | |
| hjúkrunarfræðingur, M.S. í heilbrigðisvísindum 2008 | |
|
Heiti verkefnis: |
Reynsla og upplifun eldra fólks af heilbrigði og heilsueflingu. |
| „Námið er fjölbreytt og uppbygging þess veitti mér tækifæri til að leggja áherslu á það sem ég
hef mestan áhuga á.” |
|
| Unnur Pétursdóttir | |
| sjúkraþjálfari, M.S. í heilbrigðisvísindum 2009 | |
|
Heiti verkefnis: |
Áhrifaþættir þjálfunar hjá fólki með slitgigt. Hvað hvetur, hvað letur? |
| „Einn skemmtilegasti hluti námsins er að hitta heilbrigðisstarfsmenn úr ýmsum fagstéttum og ræða málin. Námið krefst mikils af nemendum og því er góð skipulagning nauðsynleg. Á heildina litið er þetta frábært nám sem hiklaust má mæla með.” | |


