Háskólinn á Akureyri

Fræðasvið um fötlun og endurhæfingu leiða þær, Snæfríður Þóra Egilson,

Fötlun og endurhćfing

Fræðasvið um fötlun og endurhæfingu leiða þær, Snæfríður Þóra Egilson, prófessor, með áherslu á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra, og Guðrún Pálmadóttir, dósent, með áherslu á endurhæfingu og eflingu fullorðinna. Í náminu er fjallað um hugmyndafræði og stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks og gerður samanburður á ólíkum sjónarmiðum er varða heilsu, heilbrigðisvanda og fötlun. Að auki er veitt greinargóð innsýn í hlutverk endurhæfingar við að efla fólk og auka lífsgæði þess. Markmiðið er að nemendur fái yfirgripsmikla þekkingu sem nýtist þeim til að leggja gagnrýnið mat á endurhæfingu og aðra þjónustu við fatlað og langveikt fólk í íslensku samfélagi. Kjarnanámskeiðin eru Fötlun og samfélag og Endurhæfing, efling og lífsgæði.

Dr. Snæfríður Þóra Egilson er prófessor við heilbrigðisvísindasvið HA. Hún lauk prófi í iðjuþjálfun frá Osló, meistaraprófi í iðjuþjálfun frá San Jose háskólanum í Kaliforníu og doktorsprófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Snæfríður starfaði um árabil sem iðjuþjálfi með fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra. Rannsóknir Snæfríðar beinast einkum að þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í samfélaginu, í skólanum og á öðrum vettvangi. Önnur rannsóknarverkefni tengjast m.a. fjölskyldum fatlaðra barna og reynslu þeirra af þjónustukerfinu. sne@unak.is  

Guðrún Pálmadóttir er dósent við heilbrigðisvísindasvið HA. Hún lauk prófi í iðjuþjálfun frá Árósarháskóla í Danmörku, meistaraprófi í þroska- og fjölskylduræðum frá Kólóradóháskóla í Bandaríkjunum og hefur stundað viðbótarnám í rannsóknaraðferðum við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Guðrún hefur langa reynslu af starfi innan endurhæfingar, einkum með fullorðnum einstaklingum er glíma við fjölþættan heilsufarsvanda. Rannsóknir Guðrúnar lúta að reynslu fólks af endurhæfingu, samskiptum fagfólks og skjólstæðinga og þátttöku og líðan fólks með fötlun eða langvinnan heilsubrest. gudrunp@unak.is

 
Sjá handbók um námið

Skyldunámskeið í diplómanáminu Skyldunámskeið í meistaranáminu Valnámskeið á
heilbrigðisvísindasviði
EEL0105  Endurhæfing, efling og lífsgæði
FOS0105  Fötlun og samfélag
HHS0105  Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar
EEL0105  Endurhæfing, efling og lífsgæði
FOS0105  Fötlun og samfélag
HHS0105  Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar 
EIR0155  Eigindlegar rannsóknir
MER0155  Megindlegar rannsóknir
MPR0130  Meistararannsókn
KRA0105  Krabbamein og líknandi meðferð 
LSL0105  Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman
ÞFS0105  Þjónandi forysta, stjórnun og ígrundun
ÖHÍ0105 Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi
Nemendur geta einnig sótt valnámskeið við aðra innlenda eða erlenda háskóla í samráði við ráðgjafa á fræðasviðinu.
Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá

 

„Námið er vel skipulagt og samþætting milli námslota einstaklega góð. Kennararnir koma úr hinum ýmsu fagstéttum og eru með ólíka menntun og starfsreynslu. Þetta hefur í för með sér að mismunandi sjónarhorn koma fram sem skapar grundvöll fyrir áhugaverðar og lærdómsríkar umræður. Töluverður sveigjanleiki er við val á verkefnatengdum viðfangsefnum og því gefst nemendum gott tækifæri til að tengja efni námskeiðs við eigin áherslur og áhugasvið í námi.“

Sólrún Óladóttir
iðjuþjálfi og meistaranemi í í heilbrigðisvísindum

 
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ćgir Ţór Eysteinsson

„Fjölmiđlafrćđinámiđ er fyrst og fremst gríđarlega fjölbreytt og skemmtilegt. Ţađ er lögđ rík áhersla á sjálfstćđ vinnubrögđ og frumkvćđi. “

Ćgir Ţór Eysteinsson fréttamađur á RÚV
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf