Háskólinn á Akureyri

Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri er þverfaglegt diplómu- og

Diplómu- og meistaranám í heilbrigđisvísindum

Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri er þverfaglegt diplómu- og meistaranám. Lögð er áhersla á frelsi nemanda til að velja sér áherslur og að hann fái ráðgjöf við valið. Meistaranámið veitir prófgráðuna M.S. í heilbrigðisvísindum (120 ein.) og diplómunámið Dipl. í heilbrigðis vísindum (40 ein.).

Kennsluhættir og -tilhögun
Áhersla er á virkni nemenda og umræður. Að jafnaði eru verkefni í stað prófa. Kennt er í lotum og námið skipulagt þannig að stunda megi vinnu með því. Yfirleitt standa tveir sérfræðingar að hverju námskeiði og þar með fá nemendur meiri hugmynda- og þekkingarfræðilega breidd í námi sínu en ella. Námslotur eru fjórar á hverju misseri. Forsenda fyrir gagnrýnni umræðu er að nemendur mæti í loturnar, það auðveldar alla verkefnavinnu og auk þess kynnast þeir hver öðrum og kennurum sínum. Opin málþing eða ráðstefnur eru haldin í tengslum við mörg námskeiðin.

Til viðbótar almennu framhaldsnámi í heilbrigðisvísindum eru boðnar námsleiðir þar sem nemendum gefst kostur á að leggja áherslu á öldrun, fötlun og endurhæfingu, eða krabbamein og líknandi meðferð.

Fræðasvið um fötlun og endurhæfingu leiða þær, Snæfríður Þóra Egilson, prófessor, með áherslu á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra, og Guðrún Pálmadóttir, dósent, með áherslu á endurhæfingu og eflingu fullorðinna.

Sólveig Ása Árnadóttir, lektor leiðir fræðasviðið um öldrun. Kjarnanámskeiðið í því námi er Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi, þar sem sjónum er beint að heilbrigði, virkni og vellíðan aldraðra.

Elísabet Hjörleifsdóttir, dósent, leiðir fræðasvið með áherslu á krabbamein og líknandi meðferð og ber kjarnanámskeiðið í því námi sama heiti, þ.e. Krabbamein og líknandi meðferð.

dr. Árún Kristín Sigurðardóttir, prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs leiðir fræðasvið með áherslu á langvinna sjúkdóma.Kjarnanámskeiðið í því námi er Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman.

Þá er í samvinnu við viðskipta- og raunvísindasvið HA boðin námsleið með áherslu á stjórnun innan heilbrigðisþjónustunnar. Auk framangreindra námskeiða bætast þar við námskeiðin Forysta og árangur og Alþjóðleg mannauðs- og þekkingarstjórnun.

Skyldunámskeið í meistaranámi Valnámskeið
skólaárið 2011-2012
Valnámskeið
skólaárið 2012-2013

Eigindlegar rannsóknir
(Hvert haust)

Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta:
Staða, stefnur og straumar
(Hvert haust)

Megindlegar rannsóknir
(Hvert vor)

Krabbamein og líknandi meðferð
(haust 2011)

Endurhæfing, efling og lífsgæði
(vor 2012)

Þjónandi forysta, stjórnun og ígrundun
(vor 2012)

Fötlun og samfélag
(haust 2012)

Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman
(vor 2013)

Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi
(vor 2013)

Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá
Birt með fyrirvara um breytingu á námskrá

 

„Námskeiðið Endurhæfing, efling og lífsgæði var vel skipulagt og samþætting milli námslota einstaklega góð. Kennarar í námskeiðinu komu úr hinum ýmsu fagstéttum og voru með ólíka menntun og starfsreynslu. Þetta hafði í för með sér að mismunandi sjónarhorn komu fram sem skapaði grundvöll fyrir áhugaverðar og lærdómsríkar umræður. Töluverður sveigjanleiki var við val á verkefnatengdum viðfangsefnum og því gafst nemendum gott tækifæri til að tengja efni námskeiðs við eigin áherslur og áhugasvið í námi. “

Sólrún Óladóttir
meistaranemi í heilbrigðisvísindum

 

Deildarformaður framhaldsnámsdeildar er:
Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor sigridur@unak.is
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt viđ University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkađi sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viđskiptafrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf