Háskólinn á Akureyri

Mbl. 21. júní 2002.Erfitt starf en skemmtilegtHELLAFERÐIR, klettaklifur og kajaksiglingar er meðal þess sem felst í

Sigríður Ásta Eyþórsdóttir

Mbl. 21. júní 2002.

Erfitt starf en skemmtilegt
Sigríður Ásta EyþórsdóttirHELLAFERÐIR, klettaklifur og kajaksiglingar er meðal þess sem felst í svokallaðri ævintýrameðferð fyrir börn og unglinga sem Sigríður Ásta Eyþórsdóttir, yfiriðjuþjálfi á Barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut, hefur verið að þróa undanfarin fjögur ár. "Þetta er liður í að byggja upp félagslega færni hjá krökkum sem eru illa stödd félagslega, hafa kannski verið lögð í einelti eða hafa lélega sjálfsmynd. Við vinnum með krökkunum á jafnréttisgrundvelli, hjálpum þeim að efla eigin styrk. Mikilvægt er að þau séu líka virk í að hvetja og styrkja hvert annað og læri að taka ábyrgð innan hópsins."
Hún segir árangurinn vera mjög góðan samkvæmt viðhorfskönnunum sem gerðar hafa verið meðal barnanna og foreldranna.

Vinnur að því að efla starfsanda í fyrirtækjum
Sigríður vinnur líka sjálfstætt í fyrirtækjum og skólum og segir hún mikið að gera á þeim vettvangi. "Margir hafa þær hugmyndir að við vinnum bara inni á sjúkrahúsum með mjög afmörkuð verkefni en það er ekki rétt. Iðjuþjálfun er mjög fjölbreytt og hægt er að nýta þessa þekkingu á breiðu sviði."
Hún segir að vinnan í fyrirtækjunum gangi meðal annars út á að efla starfsanda og bæta samskipti. "Í skólunum erum við svo með til dæmis kvöldnámskeið með foreldrum og börnum þar sem eru umræður, unnin verkefni og farið í leiki." Hún bendir á að foreldrar sjái þá oft nýjar hliðar á börnum sínum og fái að vita hvaða hlutir skipti þau máli. "Foreldrar gera sér oft ekki grein fyrir því hversu mikilvægt er fyrir börnin að hlustað sé á þau og að þau fái meiri tíma með foreldrum sínum sem er það sem börnin vilja yfirleitt helst af öllu. Börnin koma líka foreldrunum oft á óvart með því hvað þau eru klár, sniðug og ábyrg."
Hún segir stundum vanta upp á að samskiptin milli foreldra og barna séu eins og vera ber. "Oft er um tímaskort að ræða og svo virðist fólk stundum vera feimið þegar á að ræða málin. Foreldrar vita stundum ekki hvernig þeir eiga að bera sig að þegar þeir vilja ræða ýmsa hluti."
Starfið getur tekið mikið á, að sögn Sigríðar. "Þetta er oft erfitt en líka skemmtilegt, til dæmis að sjá hvað krakkarnir eru ánægðir þegar þau koma úr þriggja daga fjallgöngu og hafa gert hluti sem þau hefðu aldrei trúað að þau gætu. Þegar maður sér breytinguna á skjólstæðingunum verður það alveg þess virði. Svo er auðvitað frábært að fá að vera ungur og leika sér í vinnunni."

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ægir Þór Eysteinsson

„Fjölmiðlafræðinámið er fyrst og fremst gríðarlega fjölbreytt og skemmtilegt. Það er lögð rík áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. “

Ægir Þór Eysteinsson fréttamaður á RÚV
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf