
Inntökuskilyrði í iðjuþjálfun er að öllu jöfnu stúdentspróf.
Heimilt er að veita undanþágu frá reglunni um stúdentspróf og er þá miðað við að umsækjandi uppfylli eftirfarandi skilyrði. Hver umsókn er metin sérstaklega:
- Lágmarksaldur 25 ár
- 5 ára starfsreynsla á heilbrigðis- eða félagssviði, í minnst 80% starfshlutfalli að meðaltali
- 90 námseiningar í framhaldsskóla, þar af:
9 einingar í ensku
12 einingar í íslensku
6 einingar í stærðfræði
6 einingar í norðurlandamáli - Tölvukunnátta
Nemendur þurfa að vera vel læsir á ensku og norðurlandamál. Námið tekur jafnt til raunvísinda og félagsvísinda og því er undirbúningur mikilvægur í líffræði og stærðfræði sem og í félagsfræði, sálfræði og uppeldisfræði.


