Í þessu námi, þar sem áhersla er lögð á langvinn veikindi, munu nemendur öðlast dýpri þekkingu og
sérhæfingu á því sviði.
Fólki með langvinn veikindi fjölgar stöðugt. Bæði fjölgar þeim sem greinast með langvinna sjúkdóma eins og hjarta-, lungna- og
taugasjúkdóma svo og sykursýki. Einnig lifir fólkið lengur með sjúkdómi sínum. Heilbrigðisstéttir koma víða að
meðferð og umönnun þessa hóps bæði til að bæta líf þessara einstaklinga og til að draga úr dauðsföllum af þeirra
völdum.
Markmiðið er að þekking á sviði langvinna sjúkdóma nýtist einstaklingum vel í starfi og styrki þá til að
takast á við þær margvíslegu áskoranir sem bíða fagfólks í heilbrigðisþjónustunni í dag.
| Hver og einn nemandi setur sér markmið innan framhaldsnámsins þar sem rauði þráðurinn er langvinnir sjúkdómar. dr. Árún K. Sigurðardóttir, er til staðar til að aðstoða nemendur við að setja sér þau markmið og velja síðan saman námsskeið sem skila viðkomandi að settu marki. arun@unak.is | ![]() |
| Skyldunámskeið í diplómanáminu | Skyldunámskeið í meistaranáminu | Valnámskeið á heilbrigðisvísindasviði |
| LSL0105 Langvinnir
sjúkdómar og lífsglíman HHS0105 Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar |
LSL0105 Langvinnir sjúkdómar og
lífsglíman HHS0105 Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar EIR0155 Eigindlegar rannsóknir MER0155 Megindlegar rannsóknir MPR0130 Meistararannsókn |
EEL0105 Endurhæfing, efling og lífsgæði |
| Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá | ||



