
Á heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri starfa þrjár matsnefndir í umboði deildafundar. Ein fyrir iðjuþjálfunarfræðideild önnur fyrir hjúkrunarfræðideild og sú þriðja fyrir framhaldsnámsdeild. Hlutverk þeirra er að meta hvort fyrra nám nemanda geti komið í stað námskeiða sem kennd eru á heilbrigðisvísindasviði. Í matsnefnd sitja þrír fulltrúar úr hópi kennara viðkomandi deildar. Formenn eru tilnefndir á deildarfundi en að öðru leyti skipta nefndirnar með sér verkum.
Vinnureglur matsnefnda
- Umsóknarfrestur um mat á fyrra námi er 1. maí fyrir nám á komandi haustmisseri og 1. nóvember fyrir nám á komandi vormisseri. Beiðni um mat á fyrra námi skal senda beint til viðeigandi matsnefndar (sbr. lið 2). Niðurstöður matsnefnda skulu liggja fyrir mánuði síðar og fjalla skal um þær í deildarráði í júní og desember ár hvert. Eftir umfjöllun í deildarráði er umsækjanda send niðurstaða deildarráðs og eftir atvikum er einkunnaskráningu tilkynnt um niðurstöður. Nemendur sem komast áfram á vormisseri eftir samkeppnispróf hafa frest til 5. janúar til að sækja um mat á fyrra námi og skulu niðurstöður matsnefndar liggja fyrir innan mánaðar.
- Til þess að unnt sé að meta fyrra nám þarf að liggja fyrir skrifleg beiðni nemanda um slíkt mat ásamt staðfestu afriti af vitnisburði frá þeim skóla eða skólum þar sem námið, sem óskað er eftir að fá metið, fór fram. Í umsókninni skal tilgreint hvaða námskeið óskað er eftir að séu metin á móti fyrra námi. Enn fremur skal fylgja námskeiðslýsing og lesefnislisti viðkomandi námskeiða. Skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs HA skal halda þessum upplýsingum til haga, ásamt öðrum gögnum er varða matið, í 10 ár að málsmeðferð lokinni.
- Matsnefnd getur, eftir því sem ástæða þykir til, sent beiðni um mat á fyrra námi sbr. lið 1, til umsagnar umsjónarkennara þeirra námskeiða sem beðið er um að fyrra nám sé metið á móti.
- Að jafnaði er fyrra nám ekki metið á móti námi á heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri séu meira en fimm ár liðin síðan því var lokið. Nemandi getur ekki útskrifast frá heilbrigðisvísindasviði HA með próf úr námskeiði/námskeiðum sem er eldra en 10 ára.
- Hjúkrunarfræðingar sem hafa hjúkrunarleyfi á Íslandi og iðjuþjálfar sem hafa löggildingarleyfi sem iðjuþjálfar á Íslandi geta fengið námið metið sem heildir til BS gráðu í sérskipulögðu námi í viðkomandi faggreinum, sé það í boði.
- Fylgt skal þeirri meginreglu að annað hvort sé fyrra nám metið á móti heilu námskeiði eða ekki metið. Fyrra námskeið, sem er forsenda matsins, skal að jafnaði samsvara a.m.k. 2/3 hlutum af innihaldi þess námskeiðs sem það á að jafngilda, auk þess sem heildareiningafjöldi þess námskeiðs verður að vera a.m.k. jafn mikill. Séu námskeiðshlutar metnir verða þeir að vera skýrt afmarkaðir svo hægt sé að meta þá sem heild eftir sömu reglu. Námskeið er ekki metið nema nemandi hafi lokið því með einkunninni 6 að lágmarki.
- Umsækjandi um mat á fyrra námi og/eða umsjónarkennari viðkomandi námskeiða á heilbrigðisvísindasviði getur farið fram á að málið verði tekið fyrir að nýju í deildarráði. Áfrýja má úrskurði deildarráðs til háskólaráðs.
- Ef nemandi biður um mat á námskeiðum sem áður voru tekin við heilbrigðisvísindasvið eða eiga sér greinilega hliðstæðu á sviðinu, fer erindið beint til deildarráðs að uppfylltum skilyrðum 4. og 6. gr. Ef nemandi fær námskeiðið (námskeiðin) metið, skal það fært inn á námskeiðsferil nemanda með einkunn. Matsnefndir þurfa að jafnaði ekki að fjalla um slík mál en deildarráð getur leitað álits formanns viðkomandi matsnefndar.
- Reglur þessar eru ætlaðar til að hafa til viðmiðunar. Allar viðmiðunartölur um einingar (í lið 6) eru hámörk og matsnefnd ekki skylt að meta fyrra nám að hámarki.
- Reglurnar taka gildi frá og með 14. mars 2006.


