Erlent skiptinám
Nemendur í hjúkrunarfræði geta sótt um að fara í skiptinám á
þriðja ári. Þeir geta sótt um að fara í eitt eða tvö misseri eða eingöngu í klínískan hluta
námskeiðs. Umsjónarkennari hvers klínísks námskeiðs sér um nemendur í klínísku námi erlendis.
Verkefnastjóri alþjóðamála Rúnar Gunnarsson, runarg@unak.is ásamt verkefnastjóra
klínísks náms í hjúkrunarfræði, Guðfinna Hallgrímsdóttir, gudfinna@unak.is veita
nemendum upplýsingar um samstarf HA við erlenda háskóla og þau tækifæri sem þar liggja. Má þar m.a. nefna umsóknir um styrki til
nemendaskipta. Sjá samstarfskóla hjúkrunarfræðideildar hér. Einnig geta
nemendur fundið upplýsingar um skiptinámið í Hanbók um klínísk nám í hjúkrunarfræði.
Umsóknarferli
Þegar nemandi er á 2. ári setur hann sig í samband við verkefnastjóra
alþjóðamála. Nemandi velur sér erlendan háskóla sem hann vill sækja um í og ber námskeiðsval sitt sem og tímabil
skiptináms undir verkefnastjóra klínísks náms og formann hjúkrunarfræðideildar. Þá sækir nemandinn um
í skólanum með aðstoð skrifstofu alþjóðamála.
Umsóknarfrestur fyrir komandi skólaár er 1. mars fyrir skiptinám innan Erasmus og Nordplus samstarfs og 15. febrúar innan
north2north áætlunarinnar. Verkefnastjóri alþjóðamála aðstoðar nemandann að sækja um ferða- og dvalarstyrki, ef þeir eru
í boði.
Ef nemandi ætlar eingöngu að fara í skiptinám í klínískum hluta námskeiðsins,
þá hefur hann samband við
verkefnastjóra klínísks náms og fær ráðleggingar um hvar sé hentugt sé að sækja um (land/skóli). Nemandi velur sér
land og verkefnastjóri klínísks náms veitir verkefnisstjóra alþjóðamála upplýsingar um það hvaða
klínísk námskeið skal sækja um fyrir nemandann.
Umsóknarfrestur fyrir komandi haustmisseri er 15. mars og vormisseri er 15. nóvember


