Vettvangsnám erlendis
Nemendur í iðjuþjálfunarfræði geta sótt um að taka
VNI0304-Vettvangsnám III sem er á hausmisseri fjórða námsárs erlendis.
Skiptinámið er skipulagt af samstarfsneti Nordplus en þátttakendur í netinu eru háskólar víðsvegar á norðurlöndunum,
sjá nánar hér.
Upplýsingar veita verkefnastjóri alþjóðamála Rúnar Gunnarsson, runarg@unak.is ásamt
umsjónarkennara vettvangsnáms í iðjuþjálfun Sólrún Óladóttir solrun@unak.is .
Umsóknarferli
Sækja þarf um skiptinám á vormisseri þriðja árs eða í
síðasta lagi fyrir 15. mars vegna komandi skólaárs. Umsóknarferlið tekur tíma og gott er að hafa samband við
alþjóðafulltrúa einhverjum mánuðum fyrir lok umsóknarfrests. Skrifstofa alþjóðamála aðstoðar nemendur við gerð
umsókna og við umsóknir ferða- og dvalarstyrkja, ef þeir eru í boði.
Þegar nemendur hafa ákveðið að sækja um þurfa þeir að bóka fund með umsjónakennara vettvangsnáms, þar sem kynnir
þeim forkörfur og annað sem viðkemur vettvangsnámi erlendis.


