Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum
Viðmið um mat á fyrra námi:
1. Hægt er að fá tvö námskeið frá öðrum
námsstofnunum metin til framhaldsnáms í Heilbrigðisvísindum við HA (allt að 10 gamlar einingar/20 ECTS einingar).
2. Einungis eru metin námskeið sem eru á meistarastigi. Greinargóð lýsing á innihaldi námskeiðs og námsmati skal fylgja þannig
að ljóst sé að námskeiðið standist þær kröfur sem gerðar eru til framhaldsnámskeiða við heilbrigðisdeild HA. Nemandi skal
að öllu jöfnu hafa lokið námskeiðinu með fyrstu einkunn.
3. Ekki er hægt að fá metin námskeið sem eru eldri en 10 ára.
4. Koma skal skýrt fram hvernig það nám sem nemandi óskar að fá metið tengist námsáætlun hans og lokaverkefni.
5. Ef nemandi færir skýr og greinargóð rök fyrir máli sínu má í undantekningartilvikum víkja frá 1. reglu hér að ofan
og meta fleiri námskeið til framhaldsnáms við heilbrigðisdeild HA. Þetta á fyrst og fremst við um námskeið sem ekki eru í boði við
HA, eða sérhæfð fag- eða aðferðafræðinámskeið sem nýtast nemanda ótvírætt við gerð lokaverkefnis.
Samþykkt á fundi námsráðs framhaldsnáms þriðjudaginn 3. febrúar 2009.


