Háskólinn á Akureyri

Hlutverk Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri er sameiginlegur vettvangur starfsmanna FSA og HA til eflingar

Um HHA

Hlutverk

Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri er sameiginlegur vettvangur starfsmanna FSA og HA til eflingar kennslu, þjálfunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum, miðlunar þekkingar og kynningar á rannsóknum starfsmanna.

Forsagan

Mánudaginn 7. október 2002 var undirritaður samstarfssamningur við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) þar sem FSA er skilgreint sem háskólasjúkrahús. Halldór Jónsson, forstjóri undirritaði samninginn fyrir hönd FSA og Þorsteinn Gunnarsson, rektor fyrir hönd Háskólans á Akureyri (HA). Meðal þess sem fram kemur í samstarfssamningnum er að samningsaðilar eru sammála um að koma á fót rannsóknastofnun innan heilbrigðisdeildar HA. Stofnunin beri nafnið Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri (HHA).Í samningnum er m.a. kveðið á um hlutverk stofnunarinnar og þær kröfur sem gerðar eru til starfsmanna hennar. Í framhaldi af samningnum var samin reglugerð um Heilbrigðisvísindastofnunina. Háskólaráð HA samþykkti reglur um HHA þann 20. júní 2003 og voru þær gefnar út sem reglur nr. 876 þann 20. nóvember 2003.

Póstáritun: Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri v/ Norðurslóð, 600 Akureyri, Ísland.

Tölvupóstur: bjarnij@unak.is
Sími: 460 8000 / 860 0505

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfrćđin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alţjóđlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf